Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 59
Bréf til Theodóru Thoroddsen
Róm 12. apríl 1921.
Elskan mín góða. Það er frekar af guðleysi heldur en gleymsku að ég hef
ekki skrifað þér, Theódóra. En hugir mætast yfir hafi þó lítið sé um skriftir.
Ég fékk bókina þína með góðum skilum og las hana á leiðinni hingað suður
í dýrðina. Hún hressti mig sannarlega og vertu margblessuð fyrir hana og
skrifaðu meira. En ég vona að þér líki það ekki miður: Ég vil heldur fá
þulur frá þér. Engum hefur tekist sá háttur betur en þér. Og þú getur sagt
allt í þulunni, svo auðveldur er þér hátturinn. En sögurnar eru náttúrlega
blessaðar og góðar líka og margfalt betri en ég hefði getað skrifað.
Ég yrki lítið en gleðji sig einhver yfir því að Dabbi sé dauður þá skaltu
ekki mæla á móti því, en - jæja, mér er sama. Ég geng snauður á móti fram-
tíðinni og hef engu að tapa.
Og ekki er öll nótt úti enn.
Hér er yndislegt að vera. Sól og sumar á hverjum degi. Pálmalaufin
skjálfa í vorblænum og vínviðurinn heitur eins og mey sem ætlar að fara að
stíga upp í brúðarsængina. Sítrónur og epli glóa í geislunum, bændur plægja
akra sína með sílspikuðum, stórhyrndum uxum og aka vínkvartilum og
ávöxtum jarðarinnar á asnavögnum inn í hina eilífu borg. Við ferðalang-
arnir grípum kvartilin og teygum úr þeim vínið eins og skyrblöndu því við
erum þyrstir og þreyttir af göngu yfir fjöll og heiðar. Og þó að léttur sé
malur margra þá dregur ferðamann það sem lítið er. Hér er gott að vera.
Hér er hægt að vera einn þegar maður vill og í gleðihóp þegar sú hliðin er
uppi. Hér er forn list í ríkum mæli, um gamla rómverska menningu er hér
hægt að lesa á sigurbogum og hrotnum súlum. Hér eru allar kirkjur opnar
vorlangan daginn og þangað er gott að flýja og hvíla sig og hlusta á latn-
eskar messur og bænasöngva og teyga reykelsisilminn.
Ég er nýlega kominn sunnan frá Capri. Það er guðdómleg eyja og þar
vildi ég búa á vetrum en heima á íslandi á sumrum. Ef ég væri ríkur mundi
ég gjöra það. Og þá hyði ég þér með mér eitthvert haustið. Þar er allt sem
þarf að fá til þess að koma gleði á. Gröndal mimdi hafa sagt: Þar eru klettar.
Þar eru hvít hús. Þar eru blóm. Þar eru vínlindir. Þar vaxa epli á trjánum.
Þar eru skuggasælir lundar. Þar er kvenfólk og þar er gott að vera. Ágætt -
Gröndal var meistari og gat verið dásamlega vitlaus með köflum. í Capri
dansaði ég tarantella og söng St. Luciana og sá sólina hníga eldrauða í hinar
heiðbláu Miðjarðarhafsöldur. Sjaldan hef ég séð slíka dýrð. Ég vildi að þú
hefðir getað séð hana líka. Svo gekk ég upp á Vesuvius og andaði að mér
hinni helvísku eiturgufu sem þar gýs upp úr jörðinni dag og nótt. Það er
4 TMM
49