Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 60
Tímarit Máls og menningar andardráttur tröllsins sem spýr eldi þegar það reiðist. Og skolfið hefur jörðin þegar Pompej hrundi. Það er hryllilegt að hugsa til þeirra ógna sem dunið hafa yfir íbúa þessa bæjar. Heil borg í rústum - það ekki einn smá- kofi heldur tugir stórhýsa. En það er mynd af mörgu hér á jörð. Hallir hrynja, vinir svíkja vini og blóm fölna á frostnóttum -. Guð blessi þig, Theódóra, og aldrei gleymi ég hvernig þú hefur reynst mér. Og ef mér auðnast það að koma heim aftur, sem ég vona fastlega, þá mun ekki líða á löngu áður en ég drep að dyrum þínum. Og ég vona að þú lofir mér að hvíla mig um stund í stólnum við gluggann. Mér þykir vænt um græna litinn og yfir stólnum var grænt teppi. Svo gefur þú mér einhverja hressingu því sennilega verð ég bæði svangur og þyrstur en verði nokkuð í vasa mínum færð þú að heyra. Ef til vill á ég þá leyndarmál sem ég trúi þér fyrir. - Eftir nokkra daga fer ég héðan frá Róm og til Assisi, þaðan til Firenze og svo til Veneziu - og svo norður á við. Ég uni mér mjög vel meðal óþekktra. Perlur tala með geislagliti, blóm með ilmi og mállausir með svip og bend- ingum. Hér er yndislegt að vera. En nú er komin nótt og í fyrra málið þarf ég að vera á járnbrautarstöðinni kl. 6 til þess að kveðja Maju litlu sem er að fara heim til Kristianiu. Ævintýrin taka aldrei enda. Ég bið mjög vel að heilsa Láru og svo er bréf- ið á enda. Guð sé með þér og þeim. Davíð Stefánsson FÁEINAR SKÝRINGAR Bls. 41. Iðunnar né Ágústar hirðslcáld. Davíð Stefánsson birti á þessum árum nokkur af fyrstu kvæðum sínum í Iðunni, sem Ágúst H. Bjarnason ritstýrði þá. Bls. 43. Er Sjöjn ekki dásamlegt rit? „Sjöfn / Þýðingar úr erlendum málum / Eftir Á. H. B.“ I þessu kveri (32 bls.) voru þýdd ljóð m. a. eftir Longfellow, Heine, Goethe, Fröding, Edgar A. Poe. „Sjöfn“ kom út rétt fyrir jólin 1917, svo að Davíð hefur senni- lega ekki verið búinn að sjá bókina þegar hann skrifaði þetta bréf. „Stögunarvísurnar“ hennar Ólajar Andrésd. Sbr. einnig kveðjuorð þessa bréfs. I Iðunni 1917, bls. 150-151, birtust fimm vísur undir fyrirsögninni „Að staga". Undirskrift er: Ólöf Andrésdóttir. Líklegt er að bæði í Iðunni og í bréfi Davíðs sé Ólöf misritað fyrir Ólína, en vísur þessar eru þó ekki í Ljóðmœlum Ólínu og Herdísar Andrjesdœtra 1924. BIs. 49. Ég jékk bókina þína ... þ. e. Theodora Thoroddsen, Eins og gengur, Reykja- vík 1920. 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.