Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 98

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 98
Tímarit Máls og menningar umræður um þessi mál geti orðið til bóta, því að sumt virðist vera óljóst fyrir mörgum, og langt er frá því, að þeir sem lærðir eru, séu þar allir á einu máli. Þeim er ef til vill nokkur vorkunn, sem slitið liafa kröftum sínum í áratugi við að kenna misjafnlega næmum og misjafnlega námfúsum nemendum allar þær reglur, sem lögboðnar eru við stafsetningu íslensks máls. Mig grunar, að sumum þeirra finnist, að ef þær reglur séu lagðar niður eða þeim breytt, sé verið að óvirða og gera að engu allt þeirra lífsstarf. Þetta er auðvitað hinn mesti misskilningur. Þó að þær reglur heíðu mátt vera nokkuð öðruvísi og auðlærðari, er ekki þar með sagt, að allt það erfiði hafi verið unnið fyrir gýg. En ef það skyldi nú samt vera, að nokkuð af því striti, bæði kennara og nem- enda hafi verið barátta við vindmyllur, er áreiðanlega heppilegast að kannast við það, því að þá er mál að linni. Það hefur lengi verið mín skoðun, og hún hefur styrkst með aukinni reynslu, að færa ætti stafsetningu nokkuð nær framburði en nú er, en jafn- framt að leggja aukna rækt við framhurðinn, sem að mínu viti er í afturför. Ég tel jafnvel, að komið gæti til mála að staðla framburð að vissu marki, þótt fara verði þar með gát. Helst kæmi þá til greina að taka upp norðlenska harðmælisframburðinn og hv-framhurðinn sunnlenska. Auðvitað bæri svo að halda í heiðri leifum af fornum íslenskum framburði, þar sem hann er enn við lýði, þótt ekki þyki fært að staðla hann fyrir alla þjóðina. Einkum ber þó að sporna við öllum breytingum, sem nú sækja á, svo sem grenningu sumra sérhljóða. Veðurspáin spáir til dæmis einatt suðustanátt. - Alkunn er líka sagan um drengina, sem komu frá prófi og ræddu um, hvort þeir hefðu verið lakkaðir eða hakkaðir. Við þurfum að gera okkur ljóst að íslensk tunga er málið, sem við tölum, en ritmálinu er fyrst og fremst ætlað að vera tákn hins talaða orðs. Einnig mætti benda á, að nútíma stafsetning okkar er aðeins 45 ára gömul, og þá var íslensk stafsetning færð fjær framburði, en verið hafði um skeið, og fyrir þann tíma kunnu margir að tala og rita íslenskt mál ekki lakar en nú gerist. Þar hygg ég blöðin okkar megi bera órækast vitni. Núverandi stafsetning þarf því ekki að vera neinn helgidómur, sem ekki megi hagga við. Það má ef til vill teljast nokkuð djarft af lítt lærðum seminarista að kveða upp dóm á svona fræðilegu sviði. En eftir 45 ára kennslustarf, hef ég fengið nokkra reynslu í því, hvernig það er að kenna þessa námsgrein, hve langan tíma það tekur og hve árangursríkt það strit er. En hvað við kemur hinni fræðilegu hlið, þá er það þó nokkurs virði, að vera í góðum félagsskap. Varla 38
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.