Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Side 118

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Side 118
Tímarit Máls og menningar Nú segir presturinn: „Alfaðir, Guð Himnanna, varpaði geislum sólar yfir þennann fornhelga stað.“ - Og ég sem hélt sólin hefði gert þetta, raunar ekki varpað þeim, því það gerir hún ekki, nei þeir koma að og það með einhverj- um óskiljanlegum flýti, og ekki þarf að taka fram að enginn dynkur heyrist þegar þeir detta, mild er þeirra aðkoma, svo jörðin veit varla af, nema hvað hún hlýnar, og litlu blómin snúa höfðunum við til að horfa við sól sinni. Fyrir utan lundinn, sem ekki er vinsæll sem hann á skilið að vera, er þarna á Þingvöllum, eða í nándinni, réttara sagt, annað mjög prýðilegt, og það svo að aldrei má þurrka það upp. Þelta er Vatnið. Hve himinblátt! Uppi í Himalaya er líka vatn svo ginnheilagt að það finna allir sem að því koma og vilja helst aldrei fara burt. Ég efast um að Manasarovar sé hóti heilagra en Þingvallavatn, né laði til sín nokkurn hlut betri sálir. Þarna, úti við Vatnið, hefur Elínborg Lárusdóttir setið á síðkvöldum íhugandi sitt stóra hlutverk í mannheimi, meðan dögg féll á jörð og fuglar þögnuðu, þar sat Jónas og vildi engin ber tína, því honum þótti ekki hæfa að gera sig jafnan hrafni. Nú komu þangað í þennan heilaga stað, Þingvelli, pótintátarnir og voru allir í jökkum, en blóðónýtir að yrkja, nema líklegast einn. Ég var þarna líka og ekki líkaði öllum mín upphafna indverska dýrð- arskrúð. Er nú upptalið það sem staður þessi hefur gott að geyma, nema ef telja skyldi það að piltur renni auga til stúlku og gagnkvæmt, en að þessu er ekkert gaman því að það er svo hversdagslegt. Samt er sagt að mannfjöld- inn, svo ósmár sem hann var, eigi slíkum augnagotum líf sitt að þakka, þær hafi verið upphafið. Er annars nokkuö gaman að ástasögum nema þær séu ógnarlega rauna- legar? Sunnudagaskólalegar ástasögur með sætleik held ég enginn nenni að leggja á minnið, sorglegar ástasögur með óbærilegum ólögum sínum og álögum, anakne, inexorabilia, þær munast og um þær eru ortir langir bálk- ar. Stundum stuttir. Stundum átakanlegir svo úr verður táraflóð, stundum ámátlegir svo maður ætlar að kafna. Eitt var það sem okkar frægu forfeðrum frjálsræðishetjunum góðu, þótti mest gaman; að gefa úlfi og hrafni heitt mannsblóö að drekka, og helst svo að blóÖvogurinn gnýði þeim um höfuð eins og brim gnýr við strönd, eftir að búið var að bora vondum grélum í kroppana hér og þar svo þeir dóu af því, og var ekki spurt hvort mennirnir vildu deyja, né hvort þeim líkaði að 108
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.