Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 122

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 122
Tímarit Máls og menningar segja um þá Frank Jæger og Benny Ander- sen þótt auðskilið sé að hin skemmtilegu ljóð þeirra freisti hagvirks þýðanda. Kvæðavalið orkar líka oft tvímælis frá sýnisbókarsjónarmiði. Módernistinn Klaus Rifbjerg, eins og hann birtist einkum í Konfrontation (1960), kemur hér ekki vel til skila. Það hefði verið gaman að fá þýðingar Hannesar á kvæðum eins og Nulúme eða Middelaldermorgen. Kvæðin í bókinni eru etv. einum um of í samræmi við mynd ferðamannsins af dönum sem brosmildri og feitlaginni þjóð, þægilegri í umgengni. Auðvitað eru þetta ýkjur, en ætli það sé þó ekki sannleikskorn í þeim. Val kvæðanna eftir Bj0rnvig finnst mér ekki gefa nógu góða hugmynd um það mikla skáld, gaman hefði verið að fá á ís- lensku kvæðið um seiðmennina í skratta- skeri með efni úr Heimskringlu. Það er þó með öllu ástæðulaust að eyða miklum pappír í að kvarta yfir því sem ekki er í þessari bók því það er svo margt í henni sem ástæða er til að fagna, og á það við um kvæði úr öllum löndunum og frá öllum þeim áratugum sem Hannes tek- ur til meðferðar. Hannes Sigfússon hefur frá upphafi ort svo kölluð „atómljóð" og verið einn helsti merkisberinn í baráttu gegn ofurveldi ríms og stuðla. Það er þess vegna gaman að veita því athygli hve hagmæltur hann er og að þýðingar hans á ljóðum í hefð- bundnu formi standa öðrum síst að baki. Má finna þess fjölmörg dæmi í bókinni, td. í ljóðum norska skáldsins Tor Jonsson, eða þá þessari skemmtilegu sonnettu eftir landa hans, Olav H. Hauge: SNIGILLINN Úr svölu grasi og votu að vegi bar hann - aS víðu haji úr möl sem ýjðist grátt. En friðsœlt regn og morgunmistur blátt, það merkir hagstœtt leiði. Gripinn var hann af ofurmóði. Ýtti úr vör og brátt um úthaf skreið með djarflegt bugspjót hafið gegn hverri vá! Þvi það var grett og grafið með gömul flök á boðum, mulin smátt. En það var morgunn árla; einskis bíls var enn að vœnta; mjólk á feysknum börum var ein á ferli; brennheit sól á sand var sjáljur dauðinn. Knátt, án hiks og víls hann öldur klauf. Bak hörðum hjólaförum var húmblár sniglaskógur, iðgrœnt land. Að vísu er mér ekki tiltækur frumtexti þessa kvæðis, en ég held það geti varla vcrið betra á frummálinu. Svipuð listatök eru á kvæðinu Fröding limar björk eftir sænska skáldið Sven Alfons. Annað er- indið er þannig í frumtexta og þýðingu: Ljust bekymmer över ögonbrynen Kaffeflackar i hans skagg av imma Genom himlans hydda gar en hind med snabba kliv I en mycket morgontidig timma gick han ut att hugga björklöv för att áterstalla Ijuvlighet i liv. Kvíðafölur bjarmi yfir brúnum Blakkir kaffitaumar í hans þyrilskeggi Gegnum laufsal vorsins stiklar háfcett hind Fyrr en dagur glórði í gráu hreggi gekk hann út að lima bjarkir til að endurvekja Líf í Ijóðsins mynd. Deila má um það hvort Ijóðsins mynd eigi nokkurt erindi inn í síðustu línuna, en óneitanlega finnst manni bæði Fröding og Magnús Ásgeirsson lifnaðir við í þessum línum og annars staðar í kvæðinu. Vitaskuld er hægt að finna þess ýmis dæmi í þýðingum hefðbundnu ljóðanna að íslenska ljóðstafareglan lögð ofan á 112
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.