Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 9

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 9
Adrepur tilraunum sínum til að skýra þetta tímabil: Sá slæmi Stalín hafði fengið alltof mikil völd sem hann misnotaði hrapallega, hefði þetta ekki gerst hefði þróunin orðið á annan veg og svo framvegis. Diabolismus Árna er af þessum toga. Með ofuráherslu á snilli leikhúsmannsins mikla eru viðbrögð fólks við réttar- höldunum útskýrð sem óhjákváemileg. Röksemdafærsluna fær Árni ekki til að ganga upp, skiljanlega, nema með því að skjóta inní hana svæsinni alhæfingu, eða réttara sagt fölsun á sögunni. Þeir voru vissulega til, meiraðsegja hér á landi, sem reyndu að leggja saman og draga frá og fengu dæmin til að ganga nokkuð réttilega upp miðað við þær stærðir sem þá voru þekktar; drógu síðan af þessu margvíslega lærdóma og flestir fremur uppgjafarkennda. Og þó Trotskí og Deutscher hafi ekki vitað hvað gúlagið var stórt, kom það ekki í veg fyrir að þeir og margir fleiri tækju afstöðu gegn þeim hluta þess sem þeir vissu um, án þess þó að umturnast í andstæðinga alls sósíalisma. En „leikritið“ var meira en réttarhöld og gúlag; þetta tvennt er aðeins það áþreifanlegasta núna eftirá. Stalínisminn var andleg miðöld, í allri hugsun kippur langt afturfýrir Marx og í sumum greinum afturfyrir vestrænan húmanisma. Og þá vaknar spurning sem vafist hefur fyrir fleirum en mér: hvernig stóð á því að svona margir aðhylltust þessi ósköp, flestir gersamlega gagnrýnislaust og sumir af trúarlegri ákefð? Hér hrökkva ekki til þær ástæður sem menn höfðu til að styðja Sovétríkin sem tilraun til sósíalisma (að þeirra mati) og öflugan bandamann gegn fasismanum. Enn síður „djöfulleg snilli Stalíns". Sem hugmyndafræði var stalínisminn hvorki djöfullegur né snjall og þaðanafsíður djöfullega snjall. Hann var moð. Utbreiðsla stalínismans er órækur vottur um afhroð gagnrýninnar hugsunar meðal flestra sósíalista á þessum árum, þörf þeirra á andlegu haldreipi hvað sem það kostaði, pólitískan þolandahátt og oft á tíðum sefjunarkennda auðsveipni; eftir að dýrðin þvarr hefur mörgum reynst leiðin æði létt undir guð almáttugan, þjóðina, nýja flokka, nýja leiðtoga og fleira sem þægilegt þykir að beygja sig undir. Þessi hlið stalínismans er ekki aðeins eftirgjöf sósíalista gagnvart borgaralegri hugmyndafræði og lífsmynstri, hún er samrunnin aldagömlum leifum af ýmsu því versta sem bæði borgaralegum og sósíalískum byltingum var ætlað að vinna gegn. Skýringa á henni er að leita í menningarsögulegu samspili margra þátta en ekki persónunni Jósep Stalín. Þó ádrepa Árna sýni ljóslega að gamall sovétátrúnaður er ennþá nokkuð viðkvæmt mál, þá er hún samt gleðilegt viðbragð á tímum þegar flestir kæra sig kollótta um sögu „hreyfingarinnar“ svo ekki sé minnst á gamla og nýja drauma um annarskonar mannlíf. 383
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.