Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Side 54

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Side 54
Tímarit Máls og menningar fyrst á markaðinn í september í haust. Myndi svona bók seljast meðal enskumælandi manna? I sumar dvaldist ég rúma tvo mánuði í Austur-Skaftafellssýslu i því skyni að safna gögnum til sögu sýslunnar. Þar er ég fæddur og upp alinn. Miklum lífshættum reyndi guð mig með á þessu ferðalagi. Hann opnaði glugga himinsins, og ár og fljót ultu kolmórauð niður hverja fjallshlíð og undan hverjum skriðjökli, sem í The Basic Dictionary heitir River of ice! Fimm daga hélt ég kyrru fyrir á óðalsetri Brennu-Flosa í Svínafelli. Þar held ég, að sé einhver fegursti staður á þessari plánetu. En þessa fimm daga rigndi látlaust. A sjötta degi veittist mér sú mikilfenglega lífsreynsla að fara vestur yfir Skeiðarársand og ríða Skeiðará sjómikla. Þarna beljaði hún niður sandinn í ótal álum, kolmórauð, með fossandi straumfalli, svo að straumhnyklarnir hrúguðu hátt í loft upp. Við vorum tvo klukkutíma að komast yfir hana. Nessveitin — en svo heitir bygðin meðfram Hornafirði austanverðum — er líka yfirnáttúrlega fögur. Þar eru elztu fjöll landsins, og fólkið fer á milli bæjanna á bátum. Fjörðurinn er fullur af eyjum og fugli, og silungur og koli (sem þeir kalla þar lúru) stekkur lifandi upp í pottana. Skaftafellssýsla er gerólík öllum öðrum stöðum á Islandi, bæði að því er náttúruna og fólkið snertir. Þar ættir þú að ferðast um einhverntíma áður en Drottinn kallar þig upp á gullplan hinnar sigrandi kirkju (eklezio triumfanta.) Eg hefi nýlega komist í kynni við mikinn speking hér <0 bænum. Hann er krypplingur og hefir tekið þátt í andatrúarfundum og andasær- ingum í London fýrir 20 árum. Nú stúderar hann kenningar hins heilaga Buddha og teiknar dularfullar táknmyndir, sem tíðkast hafa í indverskum musterum fyrir þúsundum ára. Hann á ósköpin öll af enskum bókum um alls konar efni, einkum þó um sálarfræði, dulspeki og mannfræði. Hann veit alt, þekkir alt, skilur alt. Að lærdómi til er hann úrsmiður. Ég skal koma með þér til hans, þegar þú kemur hingað næst. Þórey og Kristín biðja að heilsa þér. Kristín elur nú mestan sinn aldur á sundi til þess að ná af sér fitu. Hvernig gengur þér að læra írskuna? Ef þú lest um einhvern mann í fornírskum bókmentum, sem eitthvað líkist mér, bið ég þig að gera svo 428
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.