Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 81
Jðlasaga Þarna er hún Golla rolla. Ósjálfrátt datt mér í hug að lögregluþjónninn hefði ruglast, og væri nú að hefjast dæmigerð íslensk endaleysa, því eskimóarnir rauluðu: „Hann var í jötu lagður lágt,“ og ýmislegt benti til að barn hefði fæðst í hótelherbergi, áþekktu fjárhúsi hvað sóðaskap áhrærði, og forustusauð- urinn þar héti Golla rolla. Til að kóróna dæmið skorti einungis það að kani stúlkunnar kæmi malandi á ensku í fylgd röflandi íslendings. Hún Golla rolla er vinkona okkar, lögreglunnar, sagði lög- regluþjónninn. Við vorum að leita að henni. Golla er með æxli við heilann og á hana rennur rugl og villa. En þetta er besta manneskja, bætti hann við af íslenskri mannúð. Síðan hvarf löggan til að sækja liðsauka. Þá reis stúlkan af fletinu með fagurt bros á vör. Hún dró skúffu úr borðinu og fórnaði höndum í hrifningu, eins og barn sem finnur fjársjóð á teikningu. I skúffunni voru leifar af dýrum djásnum göfugrar, íslenskrar ættar: velktar myndir í trérömmum, bognar nælur, hringar og upplituð umslög sem frímerkin höfðu verið klippt af — því það eru ævinlega frímerkjasafnarar í þannig ættum — og bréf með bandarískum frímerkjum sem varla sást í fyrir varalit og kossum. Stúlkan horfði frá sér numin á dótið og vegsamaði hástöfum fortíð sína í skúffunni, og um leið ættmann sinn á Austurvelli, og kvað erfðagóssið vera úr dánarbúi nýlátins útgerðarmanns. Þá sótti hún myndabunka í umslag og brá í skyndi upp ævi sinni síðustu fimm árin í orðum og myndum. Léleg myndavél hafði fest æviágrip hennar á gljápappír og stundum í lit: Stúlkan stóð í sinni dýrð klædd brúðarkjól framan við altari. Hjá henni var hermaður af Vellinum, smávaxinn með austurlenskan svip og brosmildur. Faðir stúlkunnar var hins vegar gneypur og munnurinn þóttamikill og herptur. Foreldrunum var ekkert um að blóð hinnar miklu Bíldudalsættar mundi streyma eftir brúðkaupið beina leið til Filipseyja og einhvers hluta Bandaríkjanna og við dreifingu bláa blóðsins yrði vegur ættarinnar líkt og þegar veldi spánarkónga var mest á þessum slóðum og þeir sögðu: „Sólin sest aldrei í voru víðáttu- mikla riki.“ Því þegar sólin settist í nýlendu í vestri reis hún í nýlendu í austri. Sama hefði svipmikla ættin getað sagt, því þrátt fyrir ungan aldur 455
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.