Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 20

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 20
Tímarit Máls og menningar menntaskólanám sem fyrirmynd um góða og nauðsynlega „menntun“. Öðru hverju heyrast þó aðrar raddir (t. d. í drögum að endurskoðun á al- mennum hluta aðalnámskrár grunnskóla sem gefin var út af menntamála- ráðuneytinu, skólarannsóknadeild, í apríl sl.), en þær reynast oft hjáróma og valda litlum breytingum á starfi skólanna, enda vart við öðru að búast. Til þess að skólar okkar megi verða betri menntastofnanir, í bestu merkingu orðsins, þarf miklu víðtækari umræðu og umhugsun um þau grundvallar- sjónarmið sem ríkja í þjóðfélaginu og tengjast menntun og menningu. Hvað á þá að samræma í skólastarfi og hvað má ekki samræma? Að sjálfsögðu hljómar það sem upptugga að segja: Við eigum að samræma þá þætti sem leiða til menntunar og forðast þá samræmingu sem hindrar að menntun verði eign allra sem í skólanum starfa og þar með samfélagsins í heild. Slíkt leiðarhnoða er allt of almennt til þess að geta vísað okkur veginn. Kenningar Batesons um nám geta etv. orðið okkur að gagni til að komast úr öngstrætinu sem við virðumst stödd í. I fáum orðum sagt: Við verðum að skapa skóla sem hættir að krefjast fyrstastigsnáms í þeim mæli sem nú er á öllum skólastigum (og kemur oft fram í því sem samræmt er), en leggur þess í stað höfuðáherslu á annarsstigsnám og það gagnkvæma traust sem er forsenda þriðjastigsnáms. Ofuráhersla á fyrstastigsnám hefur áhrif á marga þætti skólastarfs, svo sem samskipti nemenda og kennara, námsmat, áhuga og námshvatningu, sjálfsmynd, frumkvæði og ábyrgð nemenda og kennara. I flestum, ef ekki öllum tilvikum, leiðir slík áhersla til lakara skólastarfs — skólastarfs sem oft á lítið skylt við þá hugmynd um menntun sem hér hefur verið tíðrætt um. Hluti af nemendahópnum samsamast, oftast óvitandi, þeim forsendum (við- horfum, afstöðu o. s. frv.) sem gengið er út frá sem gefnum af þeim sem skipuleggja og stjórna skólanum. Ymist gerist þetta vegna þess að þessir nemendur hafa drukkið forsendurnar í sig „með móðurmjólkinni" eða að þeir laðast að þeim þegar í skólann kemur, oftast í persónugervi einstakra kennara. Þessir nemendur verða „góðir námsmenn" í augum kennara, foreldra, þeirra sjálfra og flestra annarra. Aðrir nemendur hafa lítil sem engin tækifæri til að samsamast viðhorfum skólans. Þessir nemendur verða meira og minna utanveltu frá byrjun og staða þeirra verður oft erfiðari eftir því sem lengri tími líður. Margir úr þessum hópi hrökklast úr skóla eftir 8. eða 9. bekk með sárar minningar og neikvæða sjálfsmynd sem skólinn hefur styrkt með ósveigjanlegri afstöðu sinni og skilningsleysi á mikilvægi ann- arsstigsnáms, þ. e. að nemendur fjalli um og tileinki sér meðvitað forsendur fyrstastigsnámsins. Að sjálfsögðu er svo allstór hópur nemenda sem skólinn hefur tiltölulega lítil áhrif á. Þeir fljóta yfirleitt átakalítið gegnum skólakerf- ið en oft þarf lítið að bera út af til að þessir nemendur (oft kallaðir 370
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.