Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 43
Það er líka ýmislegt að gerast hér heima — þegar vel viðrar horfins samfélags. Það verði að horfa til framtíðar og minnast þess að þau börn sem nú er verið að ala upp verða virkir þegnar í samfélagi 21. aldarinnar. Skólinn verði, í stað þess að eyða mestum tíma sínum til að miðla nemendum af þekkingu sem úreldist fyrr en varir, að þjálfa þá í að afla sér þekkingar, gera þeim kleift að draga eigin ályktanir, temja þeim gagnrýna og sívakandi hugsun. I þessu felst einnig krafan um að í stað þululærdóms sé leitast við að efla skilning barna á umhverfi sínu, á mannlegu samfélagi og umhverfi, á ólíkum kjörum fólks í heiminum, vandamálum samtíðar og framtíðar. Þetta verður ekki gert með því að segja nemendum deili á fyrirbærunum, skýra fyrir þeim samhengi og rekja þeim ályktanir forkólfa eða fræðimanna heldur með því að þeir glími við hlutina sjálfir. Væntanlega er nú ljóst að hugmyndir um sveigjanlegt skólastarf sverja sig mjög í ætt við þá opinberu umbótastefnu í skólamálum er nokkru réð við setningu laga um grunnskóla 1974 og námskrár árin þar á eftir, sem raunar má segja að mæli fyrir um sveigjanlega kennsluhætti. Þessar aðgerðir marka að sumra dómi endapunkt á bjartsýnisskeiði meðal skólamanna sem hófst á sjöunda áratugnum og einkenndist m. a. af þeirri trú að um skólann lægi mikilvæg leið í átt til manneskjulegra samfélags og lýðræðislegri samskipta. Síðan hefur trúin greinilega rénað á að „hið opinbera" geti haft frumkvæði í þessum efnum. Stuðningur af þess hálfu er áreiðanlega mikil- vægur en hugmyndir um sveigjanlegt skólastarf byggjast m. a. á því, að það þurfi að verða viðhorfsbreyting hjá þeim er standa að skólanum, einkum meðal kennara. Forsenda þess að til verði góður skóli sé einkum sú að sem flestir reyni að leita að honum. Hægt og bítandi fjölgar þeim kennurum og foreldrum hér á landi sem vilja vinna að framgangi hugmyndanna sem hér hafa verið reifaðar. Þessi áhugi hefur aukist til muna að undanförnu svo líkja má við hreyfingu — jafnvel vakningu, enda þótt hér sé ekkert fagnaðarerindi boðað, ekki „varanlegar lausnir“ á vanda skólans, aðeins þrotlaust starf. En það er uggur í mönnum. Víða á Vesturlöndum eiga hugmyndir um sveigjanlegt skólastarf undir högg að sækja. Margir virðast vilja feiga alla viðleitni í skólamálum sem boðar virkni, sjálfstæða og gagnrýna hugsun, fordómaleysi og samábyrgð. Þeim vex sums staðar fiskur um hrygg sem boða „dyggðir“ á borð við refjalausa hlýðni, þjóðernisrembing og innrætingu „algildra sanninda“ í stjórnmálum og trúmálum. Margir óttast að hugmyndir af þessu sauðahúsi muni ná til Islands og þá verði troðnir niður þeir veikburða vaxtarbroddar sem hafa verið að leita sér birtu í skólum landsins upp á síðkastið. Þeir sem 393
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.