Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 70

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 70
Tímarit Máls og menningar Kvöldljóð vegfaranda. Helgi gerir nýja atlögu að kvæðinu í þessari bók, en það getur samt vart skoðast sem fullþýtt enn af hans hálfu, allra sízt miðhluti þess, sem er fulllangsóttur. Oðru máli gegnir um nýja þýðingu á Alfakónginum, sem gengur vel upp, en menn ættu að láta sér nægja að lesa hana í hljóði, en taka ekki upp á því að fara að syngja hana við lag Schuberts, enda bersýnilega ekki ætluð sem söngtexti. Til miklu meiri tíðinda en þýðingarnar á kvæðum hirð- og lárviðarskáldanna í Weimar verða þó að teljast þýðingar Helga á ljóðum Hölderlins, þessa misskilda og einmana snillings, sem allra manna á síðari tímum hefur staðið næst Forngrikkjum í lífi og list og orkar eins og nokkurs konar sendiboði úr landi þeirra inn í smáborgaralegan heim seinni tíma. I samræmi við það einkennist skáldskapur Hölderlins af óvenjulegum tærleika og klassískri heiðríkju, og þýðing á ljóðum hans krefst einnig næmis fyrir þeirri grískættuðu hrynjandi og því upphafna máli sem hann beitti fyrir sig. Það hefur Helgi einmitt til að bera og tekst því að gera þau kvæði sem hann hefur þýtt, hvort heldur þau eru undir Alkajosarhætti eins og Kvöldórar eða öðrum lausari eins og Vort bálfa líf eða Orlagaljóð Hyperions, að sönnum ljóðperlum einnig á ís- lenzkunni. Þó er erfitt að fella sig við það tiltæki Helga í síðarnefnda ljóðinu að nota orðið „snilld“ um þær goðverur sem ljóðið er ort til og ávarpaðar eru í upphafi með orðunum „ihr selige Genien“ og síðar nefndar „die Himmlischen“, því Hölderlin hefur hér auðvitað í huga þau Grikkja goð sem einhver hafði að vísu áður lýst dauð en lifðu þó góðu lífi í hugarheimi þessa skálds. Þótt afdregin hugtök eins og „snilld“ (eða jafnvel platónskar frummyndir) standi kannski nær hugs- unarhætti nútímamanna en hin grísku goð, er gallinn sá að við verðum hér í kvæðinu að persónugera snilldina ærið mikið við lestur kvæðisins, látum vera í upphafi þar sem hún svífur í ljósi, en einkum þegar líður á kvæðið og hún „andar himnesk" („atmen die Himmlischen") eða henni blómgast „ódáins andagift" („Blúhet ewig/Ihnen der Geist“), og er því vandséð hvers vegna ekki má einfaldlega tala um goð eða regin. Af öðrum þeim „Genien“ í jarðneskari skilningi sem ortu á þýzka tungu og kynnt eru Islendingum í þessu safni ber að nefna einkum þá Nietzsche og Rilke sem eru í senn skáld og spámenn og opna í ljóðum sínum nýja sýn á tilveruna í heild, og er því mikill ávinningur að fá þá hingað til vors spámannssnauða lands í svo vönduðum þýðingum. En um þýðingar á öðrum skáldum þýzkrar tungu frá 19. öld, sem yrkja í rómantískum eða síðrómantískum dúr, frá Heine til Hesses má segja að 420
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.