Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Síða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Síða 50
Tímarit Máls og menningar andspænis honum verða lesendur að persónum Thors. Skilningi þeirra og vana- bundnum hugsunarhætti er ögrað; þeir eru í hættu staddir. í verkum Thors hegða persónur sér iðulega líkt og lesendur gagnvart texta og spyrja til dæmis eins og lagskona förumannsins í Tumleikhúsinu'. „Á þetta að verða saga?“6) Til- gangi þeirrar „sögu“ er kannski náð í bókarlok er hún spyr: „Er ekki nóg að lífið sé flókið?" (205) — vegna þess að eftir því sem heimurinn verður flóknari verður erfiðara að sannfæra fólk um að lífið sé flókið; sögurnar sem heimurinn hefur til reiðu verða æ einfaldari ef eitthvað er. Hér má kannski finna endalaust markmið hinna mögnuðu skáldsagna sem Thor hefur skrifað: að láta það renna upp fyrir okkur í sífellu að lífið sé margbrotið, framandi, nautnalegt, myndbjóð- andi. Þessar hugleiðingar tengjast stöðu Thors Vilhjálmssonar sem róttækasta módernista íslenskra bókmennta. Fyrstu verk hans voru kannski ekki meðal þeirra sem mest bar á í þeirri „byltingu skáldskaparmálsins," sem Julia Kristeva nefnir svo og náði hér á landi fram að ganga í módernisma eftirstríðsáranna. En þótt módernisminn gengi á þeim tíma einkum í skrokk á hefðbundnu íslensku ljóðformi, er hann í raun enn afdrifaríkara afl í prósaskáldskap. Módernismi er nefnilega að eðli til andsnúinn sagnagerð, mótfallinn því að „segja sögu“. Strangt til tekið ætti módernismi jafnvel að vera ósættanleg andstaða sagna- skáldskapar, en við getum í bili látið nægja að segja að hann snúist gegn öllum einhlítum frásögnum afveröldinni og óvíða fæst betri staðfesting áþví en í verk- um Thors. Hugtakið „saga“ er merkingarþrungið orð á íslensku. Það er notað jafnt um frásagnir af „sönnum" atburðum og skálduðum. Við lítum jafnframt gjarna á ævi okkar sem „sögu“. Ég ætla mér að njóta þessa merkingarþunga orðsins í því sem hér fer á eftir. Ef við lítum fyrst á þá sögu sem liggur til grundvallar hefð- bundinni skáldsagnagerð, þá byggist hún á persónusköpun aðskildra einstakl- inga, sjónarhorni sem háð er eins konar „samningi" okkar við höfundinn, sögu- fléttu og tímaformgerð sem lesandi fær greitt úr við lesturinn og svo þekkjan- legu umhverfi sem skapar heilsteypt baksvið auk þess að koma við sögu á ýmsan hátt. Ég held það sé ekki ofmælt að ekkert þessara megineinkenna sé ráðandi afl í verkum Thors. Ef skáldsaga er byggð úr slíkum einingum má segja að ekki standi steinn yfir steini í verkum eins og Fljótt fljótt sagði fuglinn, Ópi bjöllunnar, Mánasigðog Turnleikhúsinu. Persónur eru oftast nafnlausar og það er tíðum erfitt að greina á milli þeirra, auk þess sem þær eiga það til að renna saman eða klofna sundur; iðulega er ógjörlegt að henda reiður á hver segir frá, sjónarhornið rásar til á afar ruglingslegan hátt, tíminn er á tjá og tundri, litlir tilburðir eru til að skapa sögufléttu og umhverfi sögunnar tekur næsta ólíkindalegum hamskipt- um. Þrátt fyrir allt þetta eru Thor og persónur hans sífellt með hugann við sögur 312
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.