Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Page 125

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Page 125
En sagan Úr Lámastræti er veigamesta saga bókarinnar, og þar skynjar lesandi raunveruleg átök í stíi og efnistökum. Yrkisefnið erglíma sögumanns við þá lífs- skoðun sína, að formúlurog rökfesta raun- vísindanna gildi um allt mannlífið. Rödd sögumanns er full af menntahroka og af- dráttarleysi þess sem ekki efast; allt þetta er vel gert hjá Ólafi. Afhjúpun fordóma sögumanns og þegar „andbýlingur" hans afsannar formúlukenningarnar um mann- lífið, eru einnig vel gerð atriði og sagan skilur sig frá sumum fyrrnefndum sögum í því að afhjúpunin er látin liggja í stílnum. Það er látið vera að skýra að afhjúpunin eða hvörf hafi átt sér stað, heldur er lesandi lát- inn skynja að lífsskoðanir sögumanns hafa orðið fyrir áfalli. Sagan er ennfremur vel- heppnuð fyrir þá sök að Ólafur leggur rækt við ýmis smáatriði sem fylla upp í götu- myndina sem rammar söguna, að því ógleymdu að hún er mjög hönduglega uppbyggð. Orðfæri og málfar Ólafs Jóhanns er yfir- leitt ágætt og fellur vel að söguefninu. Þó er það stundum full fornt og má sem dæmi nefna söguna í garöinum, þar sem aðalper- sónurnar eru ungir fyrrverandi elskendur. Talmálið er of hátíðlegt og stirt til þess að tónn sögunnar verði trúverðugur, t.d. spyr drengurinn unnustu sína: „Viltu dreypa á víni?" og notar blótsyrðið „horn- grýtis kjaftæði". Þetta gerir söguna stirða og spillir henni. Stíll Ólafs er vandaður, en stundum fúll þunglamalegur og of dauðyfl- islegur til þess að halda lesanda föngnum. Sögurnar í þessari bók eru greinilega byrjandaverk en sé við það miðað, eins og hlýtur að teljast eðlileg krafa, þá eru þær gott byrjandaverk, og það sem best er gert gefur talsverðar vonir. Veikleikarnir liggja fyrst og fremst í því að höfundur er óþjálf- aður og að það skortir talsvert á að sögurn- ar hafi lifandi þrótt og átök til að bera eins Utnsagnir um bœkur og hefði mátt vænta hjá svo ungum höf- undi. Páll Valsson ÞÁTTUR AF ÞORLEIFI FRIÐRIKS- SYNI OG UPPRUNA NÚTÍMANS Ég má til með að gera fáeinar athugasemd- ir við „Nokkra gagnrýnisþanka varðandi „Uppruna nútímans"" sem Þorleifur Frið- riksson skrifaði í 2. hefti Tímaritsins. Mér er að minnsta kosti skylt að láta koma fram að sú „fölsun sögunnar" sem hann finnur í þessari kennslubók okkar Braga Guð- mundssonar er öll komin frá mér. Allar at- hugasemdir hans eru við efni sem ég lagði til bókarinnar. En ég hef fleira að segja við lesendur Tímaritsins um gagnrýni Þorleifs. Fyrst er rétt að nefna þau atriði sem hann gagnrýn- ir með réttu og þakka honum um leið fyrir ábendingarnar. Mér virðast þau vera þrjú. Fyrst er það að auðvitað var Haukur Björnsson ekki listmálari. Um það hljóp í mig svolítil meinloka þegar ég sagði frá stofnun Kommúnistaflokksins. Og, eins og Þorleifur giskar á, spratt hún að hluta til af því að Haukur leigði hús Júlíönu Sveinsdóttur listmálara og þar var málaravinnustofa sem hýsti stofnfund flokksins. f öðru lagi var óvarkárt af mér að nota orðið „umsvifalaust" þar sem ég segi um Kommúnistaflokkinn: „sættu menn sig ekki við línuna frá Komintern var þeim umsvifalaust vikið úr honum." Þorleifur þykist vita að brottrekstur hafi alltaf verið „allra síðasta ráðstöfunin", og get ég ekki rengt að einhver umsvif hafi jafnan farið á undan brottrekstrum, þótt Þorleifur nefni enga heimild að staðhæfingu sinni. Hitt stendur enn óhrakið sem Þór Whitehead 387
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.