Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Blaðsíða 19

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Blaðsíða 19
Adrepur Nú sé ég þess engin merki í texta sögunnar, að þessi túlkun hvarfli þar að nokkrum manni, hvorki Olafi digra, sögumanni né öðrum, að innrásin sé fyrst og fremst dulbúin uppreisn gegn móður, tilraun til að tortíma henni. Spurning- in er þá hvort slík túlkun eigi ekki samt fullan rétt á sér, til að kanna söguna innan ramma hugmynda sem nú séu í tísku. Það væri í samræmi við það, að gömul bókmenntaverk geta nútímalesendur ekki skilið út frá horfnum hug- myndaheimi, sem ríkti þegar þau voru samin, heldur hlýtur skilningur lesenda á þeim að mótast að verulegu leyti af þeirra eigin hugmyndaheimi. Þyki túlk- unin gera mikilvægum þáttum verksins skil í samhengi, og bregða nýju ljósi yf- ir það, má hún þá ekki þykja fullgóð, út frá hvaða forsendum sem hún gengur? Því aðeins, sýnist mér, að hún sé þá borin saman við aðrar túlkanir, og sýnt fram á að hún sé þeim betri. Sé það vanrækt, og látið nægja að tala um túlkun „sem vel gæti hugsast“ má lesa hvað sem er inn í bókmenntaverkið, þá er ekki tekist á við það, og þá gefur það lesendum ekkert annað en staðfestingu á hleypidómum þeirra. Þá er komið út í aðferðir pýramíðaspámanna eða hvaða hjáfræðings sem er. Það er samkenni allrar hjáfræði að láta sér nægja að setja fram tilgátur og finna dæmi sem koma heim og saman við þær. En fræðileg af- staða er að draga tilgátur sínar í efa, reyna að prófa þær, (sjá nánar Þorstein Gylfason, bls. 253-4). Bergljót Kristjánsdóttir fer í grundvallaratriðum þannig að í sinni grein um Gerplu. Hún byrjar hvern þriggja síðustu kafla greinarinnar á ályktun fyrri fræðimanna um meginatriði sögunnar. Síðan rekur hún ýmislegt í sögunni sem varðar þetta, og kemst þannig að rökstuddri niðurstöðu sem stangast á við til- vitnaða túlkun. Að vísu eru þær niðurstöður misvel undirbyggðar. Mér sýnist alveg órökstutt og út í hött að kalla Sviðinsstaðavígin „ástarjátning alþýðunnar til skáldsins" (bls. 295), og ófullnægjandi rök fyrir því að Þorgils Arason og Vermundur tákni andstæður nýríkra og gamalgróinna auðherra í íslensku þjóð- félagi um miðbik 20. aldar skv. túlkun kommúnista þá (bls. 292). Enda er sú ályktun studd rangtúlkun þeirri, að kvensemi Vermundar sé „merkileg, konur hans eru fjárfesting sem til er kostað eftir því hvaða arður fæst af þeim“ (bls. 291). Þetta er bara eins og annars staðar í þjóðfélaginu, að í hjónabandi lögðu báðir aðilar ámóta mikið fé fram. Fyrir kemur að tilvísun vantar, svo sem fyrir því, að Olafur helgi og lið hans sé a.n.l. eftirmynd nasista, og að Helga Kress setti fram kenninguna um að Fóstbræðrasaga sé skopstæling á Islendingasögum (bls. 286). En í meginatriðum er fræðilega tekið á málinu. Matthías V. Sæmundsson á í sama tímaritshefti grein sem fellir í eina heild mikið efni. Hún fjallar um frásagnarlist nútímaskáldsagna, með sérstakri hlið- sjón af Fljótt, fljótt sagði fuglinn eftir Thor Vilhjálmsson. Það er sú bók Thors sem mest hefur verið um fjallað áður. En því miður er ekki ljóst hverju Matthí- as bætir við það. Þetta varpar skugga á annars athyglisverða grein, og sjálfsagt að ástæðulausu. Matthías nefnir helstu greinar um söguna í heimildaskrá sinni. En í greininni sjálfri er ekki hægt að sjá hvað er úr þeim ritum, og hvað er frá 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.