Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Blaðsíða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Blaðsíða 30
Tímarit Máls og menningar Nei, ég hef aldrei orðið var við það. Ekki í þessum klassíska skilningi að ég sé forvitri. Þó héldu ýmsir að strandið hefði orðið áður en ég orti Dymbilvöku af því að þar er eins og forspá um það. Og þegar þú lýsir því hvernig þú bídur eftir orðunum er stundum eins og þú sért ekki alveg í þessum heimi. Þó var biðin ósköp grá og ömurleg oftast. Fyrsti þátturinn í Vetrar- myndum í Sprekum á eldinn lýsir þessu vel - „Djúpt sefur þú í djúpi mínu . . .“ Eitt Ijóð í nýju bókinni þinni minnir á þetta líka - „Fyrirburður úr djúp- inu “. Ég skildi það svo að það væri um skáldskapinn. Já, það er rétt þó að það sé líka alveg rökrétt lýsing á veiðiferð. En armurinn vegur lóð efans . . . Já, maður veit ekki hvort nokkur fiskur bítur á! En það var ekkert erfitt fyrir mig að yrkja þetta ljóð, þá var ég þegar kominn af stað. Mér hefur alltaf fundist erfiðast að byrja að yrkja. Það er eins og það þurfi að safnast fyrir í mér allt mögulegt áður en ég yrki. Þegar fullt er orðið fer ég af stað. Enda líður mjög langt á milli bóka yfirleitt. „Úr djúpum þessa úthafs sem nefnist veruleiki“ Þú lýsir þér eins og safnþrró! Og ég sem hélt að þú fengir guðdómlegar vitr- anir. En ýmislegt bendir til að ég hafi trú á einhverjum innri manni, einhverju djúpi, einhverri fortíð eða einhverju sem segir mér til, það kemur víða fram, til dæmis í Dymbilvöku þegar segir „Oft var sem læsi eg luktum aug- um þótt ei læsi eg mér að gagni“ eða „véfrétt luktum vörum tjáði mér“. Eg hef einhverja tilfinningu fyrir því að það sem mér er sagt þegar ég yrki komi mjög djúpt innra frá mér eða frá einhverri dulvitund sem er ekki bara mín heldur kannski mannkynsins alls. Hér er ég kominn mjög langt aftur í tímann eins og þú sérð: Undir moldum þar sem gneypur gekk um gólf í stofu skreyttri pardusfeldum og augu lukt til hálfs af veggjum horfðu en hamur dauðlegs manns á gólfi lá Þetta er eitthvað dýpra en eigin vitund - eitthvað sem er á bak við allt. Eg hef trú á að mannkynið hafi einhverja heildarvitund án þess að gera sér það ljóst, eitthvað sem brýst í gegn þegar á reynir. Og sigri að lokum. Eg hef alltaf verið bjartsýnn á það - þó að ég hafi annars verið svartsýnn - að brjóstvit mannsins sigri. Það er eiginlega það sem ég á við. Þetta brjóstvit 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.