Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 27
„Htegt felldi ég heim minn saman“ brotið blað í íslenskri ljóðhefð. Imbrudagar komu í beinu framhaldi og þeim hefur ekki þótt ég taka nógu stór skref. Kannski er alltaf erfitt að halda áfram eftir nýstárlega fyrstu bók, fólk gerir kröfu um að fá eitthvað ennþá nýrra, eitthvað sem gengur enn lengra. Og Imbrudagar ganga lengra en Dymbilvaka, ljóðin í Dymbilvöku eru miklu bundnari og hefðbundnari að málfari. Mér finnst ég hafa stigið skref áfram með Imbrudögum, sérstaklega fyrri hlutanum. „I steindri þögn hinna þúsund langnættu ára“ Þú yrkir í býsna hátíðlegum stíl. Já, ég hef alltaf notað þetta sterka mál. Það virðist vera einhvers konar ástríða mín að láta orð og setningar hljóma. Mér finnst hátíðleikinn mest áberandi í fyrstu tveim bókunum. Það má líka segja að í „Vetrarmyndum úr lífi skálda“ í Sprekum á eldinn sé nokkuð hástemmt orðalag oft á tíðum. Er þetta lærður stíll að einhverju leytii Nei, ég held ekki. Þetta er mjög eðlilegur stíll fyrir mig. Eg kann best við ljóð sem eru ort á sterku máli í myndríkum stíl. I síðustu bókinni minni er ég farinn ofan af þessum hástemmda ljóðstíl að mestu leyti, en það er eðli- legt vegna þess að maður eldist og þá verður allt hversdagslegra. í þann tíma var mikil spenna í mínu sálarlífi og það heyrði til að láta orðin hljóma. En stundum finnst manni myndmálið óíslenskt, hvaðan kemur til dæmis Ijónið inn í Ijóðin þín ? Ætli það hafi ekki verið ljónslappadrífa þann dag? Og svo er eðlilegt að stormurinn öskri eins og ljón - „öskur ljónsins var þess eina svar“. Mér fannst þetta ágæt líking. Maður sér líka stórborgir í fyrstu bókunum þínum - og ég velti talsvert fyrir mér skógunum í Ijóðunum en ákvað eftir lestur ævisögunnar að hann væn borgfirskur. Eg hafði líka verið í Noregi og skógar hafa verið mitt yndi síðan ég var barn í Borgarfirði. Svo eru næturgalar, dýrlingar, hveitiakrar . . . Já, þetta er afar óíslenskt eins og þú segir. Eá þetta í tímanum að einhverju leyti? Það er engin íslensk sveit í Ijóðum Sigfúsar Daðasonar eða sögum Thors Vilhjálmssonar á þessum tíma. Heimurinn hafði opnast. Það er mín kenning um Stein Steinar að hann væri, burtséð frá Einar Benediktssyni, fyrsti Islendingurinn sem orti með allan heiminn í vitundinni. Áður voru íslensk skáld bundin við íslenska átt- haga, náttúru, fossa og allt mögulegt. íslendingar skynjuðu ekki umheim- ínn fyrr en á hernámsárunum. Þá ruddist heimurinn inn á íslenskt svið og TMM II 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.