Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 84
Tímarit Máls og menningar verur. Því bæta þær lífum sem þær lifa aldrei í raun við sitt eigið líf, svona til öryggis. Ef viðkomandi verður svo heppinn að koma frá sér fimm eða sex skáldsögum á lífsleiðinni, hefur því þó verið afrekað. F.R.: Þú lítur sem sagt á skáldsöguna sem útúrdúr frá hinu raunverulega lífi? P.Q.: Einmitt. En þetta er jafnvel enn snúnara, því það að skrifa bók er eins konar aðferð til að taka út forskot á eigið líf. Eg hef tekið eftir því stundum að eftir að ég hef lokið við að skrifa skáldsögu, fer ég á vissan hátt að lifa samkvæmt henni. Með því að skrifa söguna kannar maður myrk- viðið sem framundan er áður en maður heldur inn í það í raun. Rithöf- undurinn er að vissu leyti á valdi málsins, hann er heltekinn af því tilbúna lífi sem hann er að spinna upp frá eigin rótum. F.R.: Sælgæti skiptir miklu máli í sögunni. Vinátta Karls og Florents er ef svo má segja sprottin upp úr sælgætispoka. Hver er ástæðan fyrir öllum þessum vangaveltum um sælgæti? P.Q.: Eg hef afskaplega gaman af börnum, á eitt sjálfur, og ég tala oft um börn í bókum mínum. Ef minnst er á barn er stutt í sælgætið. En við getum gengið lengra. Hver einasta mannskepna sýgur á sér þumalinn í bernsku. Seinna hefur þessi sama mannskepna ofan af fyrir munninum á sér með því að troða uppí hann alls kyns sætu gúmmulaði. Síðar, og það er kannski ekki eins sniðugt, halda sumir áfram að japla á annars konar sælgæti: orð- um. Þessir orðkerar kallast rithöfundar. Skáldsögur eru eins konar aðferð til að japla á fenginni reynslu. Mér fannst áhugavert að velta fyrir mér þem- anu um sælgætið, því sælgætismoli er ekkert annað en afskorinn, bragð- bættur þumalfingur. Sælgætið er líka athyglisverður þáttur í samskiptum milli vina. Eg hafði ekki séð fjallað um þetta í skáldsögu og langaði til bæta úr því. Það eru vinarhót að bjóða einhverjum sælgæti. Og ekki einvörð- ungu milli barna. Fjöldi fullorðins fólks gengur til dæmis með tyggigúmmí eða lakkríspillur á sér alla daga og býður sínum betri vinum með sér. Þessi samskipti, sem eru ósköp látlaus og hversdagsleg, eru líka hvað innilegust. Því þá ekki að nota þau í skáldsögu? F.R.: Eins og þú veist ef til vill, erum við Islendingar mikil fiskveiðiþjóð. Þess vegna vakti það athygli mína í Wurtembergsalnum að þú minnist oft á fisk og fiskveiðar í sögunni. Hvers vegna er laxinn til dæmis þér svo hjart- fólginn sem raun ber vitni? P.Q.: Laxinn er heillandi fiskur. Það er sama þótt hann sé tekinn sem seiði úr ánni sinni og farið með hann í fjarlægt haf, alltaf skal hann rata í þessa fáeinu rúmsentimetra, í ána þar sem hann klaktist út. Hann snýr und- antekningalaust í sína upprunaá, að því tilskildu náttúrlega að hann sé ekki 74
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.