Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 110
Tímarit Máls og menningar skjálftinn og hraður hjartsláttur þeirra var eins og á því augnabliki er ákvörðun þeirra var bundin fastmælum. Hin skelfilega sýn hafði fært þeim hana aftur, einnig þau sögðu: „Það var þá þetta. . .! Þetta er það sem við hötum, það sem við óttumst, það sem liggur í laun- sátri bak við sérhvern trjábol, handan við hvert horn, en það skal ekki ná okkur. . .“ Þau hlupu af stað öðru sinni án þess að skeyta um hve vegurinn lá nærri byggð. Þau mættu engum vegna þess að þeir sem lögðu leið sína út úr þorpinu til vinnu fóru í gagnstæða átt og fljótlega sáu þau ána þar sem hún rann við rætur fjallsins með háum bökkum. Þar niður frá stóðu rústir af brú sem hafði hrunið og náði út í mitt fljót- ið, vatnið vatt sig utan um hana eins og silkiband, hespa af silki- bandi; mjúklega með lágværum klið. Þau fóru niður á brúna, þar hafði trjábolur verið lagður yfir stein- ana og í skjóli við hann voru leifar af kulnuðu báli. Raki loftsins vætti brúarrústirnar og brúskar af kóríander uxu milli steinanna. Aðeins á þeim bletti þar sem mennirnir höfðu haft viðdvöl var allt vaðandi í ösku og úrgangi, niðursuðudósum, beinum og pappírs- rusli. Þau staðnæmdust ekki í þessu bráðabirgðaskýli en gengu fram á steinbrúnina og hryllti ekki einu sinni við er þau sáu ofan í dökkan og hreinan árbotninn. Þögul héldust þau í hendur; með því að þrýsta þær örlítið samræmdu þau hreyfingar sínar eins og loftfim- leikamenn sem leggja algerlega samtaka út í áhættusama líkams- sveiflu. En áður en þau fleygðu sér fram af kom skyndilega nokkuð upp í huga þeirra sem stöðvaði þau: þau höfðu ákveðið að hverfa ekki óbundin í straumiðuna sem myndi skilja þau að. Artúr leitaði klaufalega í vösum sínum eins og þeir væru þegar orðnir honum óviðkomandi. Aróra tók utan um hálsinn á honum og lokaði augun- um en hann brá snærinu nokkrum sinnum utan um mitti þeirra og batt tvöfaldan hnút. Hann færði vangann frá andliti Aróru svo hann sæi framan í hana, í hinsta sinn langaði hann til að horfa í augu hennar en hann bað hana samt ekki um að opna þau heldur varð- veitti fyrir hugskotssjónum hið orðlausa svar augna hennar í miðj- um ástarleiknum sem veitti honum staðfestingu á karlmennsku hans. Hann lyfti henni upp og bar hana ráðleysislega nokkur skref þarna á brúninni. Yst á brúninni hallaði hann sér með henni yfir hyldýpið og er þau misstu jafnvægið stukku þau út í samtímis. Þau 100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.