Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Síða 119

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Síða 119
Skáldið andi í spiki og latar. Síðan segir Jóhann Haagen frá öðrum óförum sínum. Hann hafði fundið upp oddlausar hattklemmur sem koma áttu í staðinn fyrir nælur með oddi er stundum stungu augað úr dömum á sunnudags- göngu. Einnig hafði hann fundið upp ryklok til að setja yfir ölglös á úti- knæpum. Hafði þá ort vísu í auglýsingaskyni sem hljóðar svo: Hvorfor er du gnaven, du maa have Stöv i maven. Stövlaaget beskytter, enhver, sem det benytter. Hugmyndirnar þóttu góðar og verksmiðja nokkur lét búa til tíu þúsund stykki af tinlokum. Auðævin létu þó á sér standa því að veitingahúsin vildu ekki lokin og dömurnar fengu höfuðverk af klemmunum. Allt rann út í sandinn og hafði aðeins armæðu og fjárútlát í för með sér. Hins vegar, segir Jóhann, heppnaðist þriðja uppfinningin mín að hluta. Ég keypti dálitla strandlengju og ætlaði að selja hana aftur undir sumarbústaði og græða of- fjár. Komst full seint að því að ströndin var úr skriðsandi, glidesand, að bú- staðirnir myndu sökkva í jörð niður eða velta á hliðina ef reistir yrðu. Kaupin voru samt ekki með öllu til einskis, segir Jóhann, eða hefur þú nokkurn tíma áður heyrt þetta orð: glidesand, skriðsandur? Hversu mikið felst ekki í þessum orðum. Að lifa lífi sínu á skriðsandi! Haagen Falkenfleth hafði kynnst þeim hjónum daginn eftir brúðkaup þeirra tveimur árum áður. Þau hittust nær daglega og oft kallaði Jóhann yf- ir limgerðið að morgni dags: Komdu nú og fáðu þér morgunsjúss með mér! Haagen kaus fremur göngu og á leiðinni veiddi Jóhann bréfsnepla upp úr vösum sínum og las af þeim fyrir Haagen. Að sumarlagi sat Jóhann löngum og skrifaði við borð í garðinum milli þess sem hann fór í göngu- ferðir. Var borðplatan úr kvarnarsteini. Oðru hverju hvarf hann inn í húsið og lagðist þá á skinn að heiman og hugsaði. I stærstu stofunni hafði loftið verið rofið að hluta svo sjá mátti himininn í gegnum þakið sem málað var rautt og blátt að innan. Haagen var leikdómari við Nationaltidende og reyndist Jóhanni betri en enginn. Ritaði um hann persónuleg eftirmæli og löngu síðar ýtarlegri grein sem lýkur með þessum orðum: „Jóhann Sigurjónsson var gæddur frábær- um hæfileikum. Hann var hjartahlýr en harður við sjálfan sig. Hann lifði sitt skamma líf á skriðsandi . . .“ Jóhann kenndi þess sjálfur alla tíð. Maður þverstæðna, alvöru og nautnar, gleði og örvæntingar. Hann skrifaði lítið enda voru tímaþjófar margir. Greip hann því eitt sinn til þess ráðs að reisa þriggja álna háa víggirðingu um aftasta hluta garðsins þar sem hann leitaði síðan skjóls með kvarnarstein sinn. Við innganginn hékk spjald sem 109
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.