Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 84
eru blautir og þurrir, heitir og kaldir, og svo breytast þeir jafnt og þétt með þeim hætti að einn andstæður eiginleiki víkur fyrir öðr- um: þeir blotna og þoma, hitna og kólna. En það sem hitnar og kólnar eins og sverð þarf ekki að geta blotnað og þomað eins og svampur. Og ef það á eitthvað að vera sem geti heitið upptök alls þessa þá getur það ekki verið efnislegur hlutur af sama tæi og allir hinir. Því það má þá ekki hafa neina eiginleika sem útiloka aðra eiginleika eins og efnislegir hlutir hafa. Ef það hefði slíka eiginleika þá gæti það ekki tekið við öllum andstæðum eiginleikum, og þar með gæti það ekki orðið að öllum hlutum eins og því er ætlað að verða. Anaxímandros kallaði þessi upptök án eiginleika ómælið, „to apeiron“. Ein aðferðin til að geta sér til um rökvísi frumherjanna er að hyggja að því hvemig yngri höfundar sem við höfum fyllri heim- ildir um hugsuðu um sömu efni. Þess vegna held ég að það væri þarft verk að rýna í hugmynd Aristótelesar um ómælið sem óendanleika. Þetta er einmitt það sem við gerðum þegar við hugðum að hugmyndinni um stoðir jarðarinnar. Við sáum að Arist- óteles afgreiðir hugmynd Þalesar um að jörðin fljóti á sjónum með vítarunurökum, og létum okkur þá detta í hug að Anaxím- andros hefði gert það líka og sáum að með þeirri einföldu tilgátu má sjá fullt vit í því hvemig hans eigin kenning verður til á rúst- um hinnar. Og eins má kannski hafa stuðn- ing af brotum Herakleitosar um afstæði og algildi — þau eru dálítið fyllri en allt sem við vitum um Mfletosmenn — við að reyna að átta sig á hvað Anaxímandros hefði get- að hugsað um upp og niður. Það má jafnvel hafa stuðning af eindakenningu Demókrít- osar, til dæmis þeirri kenningu hans að fmmeindimar hafí enga annarlega eigin- leika eins og lit eða lykt heldur aðeins fmm- lega eiginleika eins og lögun og hraða, í því skyni að átta sig á ómæliskenningu Anaxí- mandrosar.24 Með þessu á ég auðvitað ekki við að við eigum að reyna að eigna elztu heimspekingunum sem mest af því sem yngra er, heldur einungis að við höfum hinar yngri og fyllri heimildir til leiðsagnar í getgátum okkar um hvemig til dæmis Mfletosmenn hefðu getað hugsað það sem þeir em taldir hafa sagt. Platón er ásamt Aristótelesi fyllsta heim- ild sem við höfum um foma heimspeki þó svo að hann hirði næstum aldrei um að fræða okkur um hana sérstaklega — þessi sagði þetta og hinn sagði hitt — eins og Aristóteles gerir jafnt og þétt. Stundum er deginum ljósara að Platón er að segja frá gamalli kenningu án þess hann láti nokkurs höfundar getið, hvað þá heimildar. Þannig virðist Faídón eftir Platón vera barmafullur af stefjum úr heimspeki fmmherjanna: til dæmis úr Pýþagórasarfræðum, án þess að Pýþagóras sé nefndur á nafn, eða þá úr Anaxagórasi sem er endursagður þar með nafni og gagnrýndur í alllöngu máli. Og þar er Sókrates látinn lýsa sinni eigin kenningu um jörðina og stöðu hennar með þessum orðum: ég tel, að sé jörðin hnöttur í miðju himn- anna, þurfi hún hvorki loft né neina sam- bærilega stoð til að verjast falli. Hún þarf þess eins við, að himnamir séu sömu lög- unar til allra átta og hún sjálf í jafnvægi. Því hlutur í jafnvægi í miðjum einslaga geymi getur með engu móti hneigzt meira til einn- ar áttar fremur en annarrar; hann mun hald- 25 ast í kyrrstöðu og hallast hvergi. Þetta er auðvitað ekkert annað en hin gamla 82 TMM 1991:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.