Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Side 33

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Side 33
Hálfiim áratug síðar kom Bréftil Láru út, og Þórbergur hóf þar raunveru- legan rithöfundarferil sinn sem uppreisnarmaður gegn máttarvöldum þessa heims og annars, og einnig rís hann storkandi gegn þeim rithefðum sem þá tíðkuðust, eins og tilvitnunin hér að framan bar með sér. Nú er þess að gæta að Þórbergur er enginn nýgræðingur þegar hér er komið sögu. Hann er hálffertugur að aldri á útkomutíma Bréfs til Láru og hefur aflað sér mjög víðtækrar menntunar á þeirra tíma vísu, að mestu leyti á eigin spýtur. Hann hafði lesið kynstrin öll á erlendum málum um fræðileg efni og var afar vel að sér í íslenskri tungu og fornbókmenntum, og auk þess handgenginn bókmenntum síðari alda eins og margvíslegar stílæfingar hans og skopstæl- ingar bera vitni um. Bréf til Láru vakti mjög sterk viðbrögð þeirra fjölmörgu sem skrifuðu um það ritdóma eða brugðust við því á annan hátt á prenti. Sumir vildu hefja höfundinn í spámannatölu, aðrir urðu hneykslaðir og reiðir. En engum gátu dulist einstæðar gáfur og hæfileikar þessa áður óþekkta höfundar. í Vísi 6. apríl 1925 undrast Jakob Jóhannesson Smári hve hugarflugið er magnað, krafturinn mikill í samsetningunni og andagiftin spámannleg. /.../ ímyndunarafl og stUl höfundar nær yfir ótrúlega víð og margháttuð svið — beiska ádeUu, meinlausa kýmni, eldheita andagift og rómantískt hugarflug, þar sem veru- leikaheimurinn með vonum sínum, vissu og vonbrigðum speglast í tárum rómantískrar fjarlægðar. /.../ slíkur eldmóður og þvUíkt hugsæi er óvanalegt. Þórbergur er hugsjónamaður og umfram alt er hann maður, — óvanalega hreinskUinn, frábærlega einlægur. Um bókina aUa leikur hressandi blær, sem er eins og svölun í því mollulofti hræsni og yfirdrepsskapar, sem vér eigum við að búa. í samanburði við þessar viðtökur er undarlegt hvað þær bækur sem á eftir komu og teljast mega efndir þeirra fyrirheita sem gefin voru með Bréfi til Láru mættu miklu tómlæti meðal ritdómenda. Þegar síðara bindi Ofvitans kom út var t.a.m. aðeins birtur um það einn ritdómur, í Stormi, og hann fjallar ekki um bóldna heldur um það hvernig tildragelsið í kirkjugarðinum hafi verið í raun og sannleika samJevæmt traustustu heimildum. Hvernig á þessu tómlæti getur staðið er erfitt að segja, ekki síst þar sem vitað er að bækurnar voru mikið keyptar og lesnar. Ein af skýringum er e.t.v. sú að á þessum árum voru menn ekki mildð að hafa fyrir því að ritdæma bækur pólitískra andstæðinga, og affur á móti voru margir samherjar Þór- bergs vonsviknir yfir að höfundur væri stiginn niður úr ræðustólnum og farinn að söklcva sér ofan í sérviskulegar endurminningar. TMM 1994:2 31
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.