Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Page 49
raktir eru burtu af samviskusemi allir þættir sérvisku svo örmjó taug er eftir. Þetta hefur raunar viljað brenna við í íslenskum bókmennt- um líka, gerist sennilega með öllum þjóðum og er trúlega mjög mann- legt, en samt dálítið hvimleitt, þar sem margir verða að ósekju útund- an þegar einhver ákveðin hug- myndakerfi virðast hernema hugsun fjöldans á vissum tímum. Þannig var ekki vænlegt til langlífis að láta sér fátt um fmnast þar sem módernisminn var. Þó er John Cowper Powys ör- ugglega nútímalegur til jafns við aðra höfunda, hann fer einfaldlega aðrar leiðir að því að tjá sig sem einstaklingur í flóknum samtíma. En ævistarf hans var ekki eingöngu bundið við skáldverk, hann varðist sérhæfni, var jafnvel kallaður „fúskari" fyrir vikið af púristum; skrifaði jöfnum höndum skáldsögur, smásögur og ljóð og svo ritgerðir um heim- speki, bókmenntir, sagnfræði og allt milli himins og jarðar á ákaflega „ófræðilegan" hátt. Skáldsögur hans eru allar sterklega markaðar persónulegri lífssýn hans, sem er mjög sérkennileg, einhverskonar blanda af ókerfaðri kristni og heið- inni dulmögnun, bjartsýni og bölsýni, hann er annarsheimslegur og raun- sæislegur í senn; lögmál andstæðnanna birtist í ýmsum myndum. Sjálfur sagðist hann skrifa skáldsögur meðfram til að koma enn frekar á framfæri þeim hugmyndum sem heimspekirit hans birtu—þannig væru þetta „heim- spekilegar“ sögur í vissum skilningi. Hann var geysilega víðlesinn í bók- menntum, trúarbrögðum og goðafræði jarðarkringlunnar, og það svo að vafasamt er að aðrir höfundar hafi leitað víðar fanga. En þekking hans hélst alla tíð lífræn og laus við allan fræðaþyrrking, hún rann saman við einstakan persónuleika og fékk útrás í skáldskapnum. Hann var ekki ffæðimaður sem stundaði skáldskap, heldur skáld sem fékkst við ýmis fræði. Hann hafði eftilvill einstæða hæfileika til að bregða áður óþekktri birtu yfir tengsl andstæðra tilfinninga, og afleiðingar þess „samspils“ í mannlegu lífi. í þeirri John Cowper Powys um 1920. TMM 1994:2 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.