Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Side 118

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Side 118
Ýmsar aðferðir má nota til að skipta hagþróun í tímabil. Það er t.d. einföld en ágæt aðferð að líta á breytingar þjóðar- tekna á mann, en þá fást með viðskipta- kjarabreytingar, sem eru mikilvægar varðandi hagþróun hér á landi, en hag- vöxtur sem rekja má til fólksíjölgunar er tekinn í burtu. Þannig mætti kalla það vaxtarskeið þegar þjóðartekjur á mann vaxa en samdráttarskeið þegar þær dragast saman. Ef þessari aðferð er beitt á eftirstríðsárin, fæst sú niðurstaða að samdráttartímabil eftirstríðsáranna hafi verið sex, þ.e. 1948-52, 1956-57,1967- 68, 1982-83 og 1988-?. Önnur tímabil eru þá vaxtartímabil og eru þau einnig sex. (Við þessa tímabilaskiffingu er litið framhjá stöðnun eða lítilsháttar sam- drætti árið 1959 og vexti árið 1991.) Þetta er sami fjöldi tímabila og hjá Sig- urði, en skilin eru sums staðar önnur. Stærsti samdrátturinn varð 1948-52, eða samtals nær 22% mælt með þjóðar- tekjum á mann, sá næst stærsti var 1967-68, eða nær 14%, en sá sem nú varir er þegar orðinn (1988-93) sá þriðji stærsti, eða nær 12% samkvæmt bráða- birgðatölum. (Hvort hann heldur þessu sæti eða lendir í öðru sæti veltur á því hver útkoman 1994 verður og hvað end- urskoðanir leiða í ljós, en þær hafa yfir- leitt haft tilhneigingu til að auka mældan hagvöxt). Kröftugasti sam- drátturinn mældur með meðallækkun þjóðartekna á mann á hverju ári var hins vegar 1967-68, en samdrættirnir 1948- 52 og 1988-? voru lengri en veikari. Á bls. 49 í bókinni er fjallað um helstu einkenni hagvaxtar hvað varðar þróun framleiðni vinnuafls, framleiðslumagn, hlutfall fjármagns og framleiðslu, arð- semi fjármagns og hlutdeild launa og hagnaðar í þjóðartekjum. Þótt það komi ekki skýrt fram er ljóst að hér er verið að fjalla um einkenni hagvaxtar samkvæmt algengustu kenningum um það mál. Það hefði hins vegar verið gagnlegt að sýna nánar þróun þessara stærða fýrir ísland í kaflanum um hagþróun á þeim tíma- bilum sem gögn eru til um. Hins vegar kemur skýrt ffam víða í bókinni að aukning útflutningstekna2 hefur verið megindrifkraftur hagvaxtar á íslandi. Yfirleitt hefur verið litið svo á í þessu sambandi að íslendingar standi frammi fyrir gefnum útflutnings- og innflutn- ingsverðum í erlendri mynt og að við- skiptakjör landsins séu þannig gefin stærð sem íslendingar geti lítil áhrif haft á, nema þá í langtímasamhengi í gegn- um val markaða og gerð þjóðréttarlegra viðskiptasamninga. (í bókinni kemur hins vegar ffam (bls.45) aðí heimsstyr- jöldinni síðari hafi Islendingar komist í þá aðstöðu á fiskmörkuðum í Bretlandi að verðleggja útflutning í íslenskum krónum og velta innlendum kostnaðar- hækkunum yfir í útflutningsverðlag án gengislækkunar.) Bent er á í bókinni (t.d. bls. 51) að hagvöxtur hér á landi hefur sum tímabil byggst að hluta á rányrkju fiskistofha. Einkum er þetta talið eiga við um 6. og 8. áratug aldarinnar. Vafalaust er þetta að nokkru leyti rétt, en hér væri gagnlegt að hafa mælikvarða á græna landsffam- leiðslu, þar sem hagvöxtur er leiðréttur fyrir breytingum á náttúruauði, einkum fiskstofnum, til að meta í hvaða mæli þetta var raunin. Því miður liggja slíkir mælikvarðar ekki fyrir. Hagstjóm Nokkuð ítarleg umfjöllun er um hag- stjórn hér á landi víða í bókinni og gerir það hana á margan hátt áhugaverðari en ella. Þannig er umfjöllunin um hag- stjórnarumræðuna á millistríðsárunum og sjónarmið þeirra Eriks Lundbergs og Benjamíns Eiríkssonar athyglisverð. Það hefði verið gagnlegt að fylgja hagstjórn- 116 TMM 1994:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.