Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 56
56 Lífsstíll 9.–11. mars 2012 Helgarblað
E
f sú staðreynd að ávextir
og grænmeti sé sneisafullt
af næringarefnum er ekki
nægileg ástæða til þess að
hlaða þeim á diskinn þá gæti
það virkað meira hvetjandi fyrir fólk
að hollmetið reynist hafa fegrandi
áhrif á útlitið.
Nýleg rannsókn gefur til kynna að
fólk sem eykur til muna neyslu sína
á ávöxtum og grænmeti er meira að-
laðandi strax sex vikum seinna. Það
voru vísindamenn í St Andrews-há-
skólanum sem rannsökuðu þessi
tengsl fæðuvals og útlits. 35 manns
voru rannsakaðir og teknar myndir
af þeim reglulega á sex vikna tímabili.
Tengsl á milli útlits og
neysluvenja
Sérstaklega skipaður hópur fór yfir
myndir af þeim sem tóku þátt í rann-
sókninni og gaf þeim einkunn. Þátt-
takendur í rannsókninni átu mis-
mikið af grænmeti. Þeir sem átu
mest fengu oftar þá einkunn að þeir
væru aðlaðandi, meðan þeir sem átu
rúman meðalskammt fengu þá ein-
kunn að þeir hefðu hraustlegt útlit.
Þeir sem fengu ekkert grænt og vænt
á sinn disk fengu síðan þá slöku ein-
kunn að þeir væru veiklulegir.
Vísindamenn ákváðu að rann-
saka tengsl á milli útlits og neyslu-
venja með það í huga að bæði ávextir
og grænmeti innihalda ríkulegt magn
af karótíni sem hefur verndandi áhrif
gegn hrörnun frumna vegna meng-
unar og geislunar, krabbameini og
hjartasjúkdómum.
Að sá fræjum ástar
„Að borða ávexti gerir þig kynþokka-
fyllri,“ segja vísindamenn rannsókn-
arinnar fullum fetum. Það var áður
vitað að það að borða grænmeti á
borð við gulrætur gæti valdið lita-
breytingum í húð. Það sem var ekki
vitað er að litabreytingarnar eru ein-
mitt það sem valda því að þeir ein-
staklingar sem borða mikið græn-
meti eru álitnir meira aðlaðandi en
þeir sem sneiða hjá grænmeti og
ávöxtum.
Í rannsókninni var myndavél með
gríðarlega öflugri linsu beint að húð-
inni og þá sáust litabreytingarnar vel
og eftir því sem neyslan var meiri á
grænmeti og ávöxtum voru litabreyt-
ingarnar meira áberandi.
Karótín og lýkópen
Það eru til hundruð mismunandi
gerða karótíns, en þau sem hafa
mest áhrif á húðina eru lýkópen. Það
efni sem gefur tómötum og rauðum
paprikum lit sinn, og beta-karótín
sem finnst í miklu magni í gulrótum,
graskeri, spergilkáli og spínati.
Húðlitur getur einnig breyst
vegna polyphenol-efna eins og
þeirra sem finnast í eplum, bláberj-
um og kirsuberjum. Þessi efni gefa
eftirsóttan roða í kinn!
Ross Whitehead, sem fékk rann-
sóknina birta í PLoD ONE sagði: „Við
væntum þess að litabreytingarnar
verði mestar hjá fólki sem borðaði
lítið af grænmeti en jók neyslu sína
til muna en við komumst að því að
breyting á húðlit verður alveg jafn-
mikil hjá fólki sem borðar þokkalega
mikið af grænmeti en bætir aðeins
við neyslu sína.
kristjana@dv.is
Grænmeti og ávextir
gera þig fallegri
Heilbrigðara útlit Samkvæmt rannsókn vísinda-
manna í St Andrews-háskólanum gerir mikil neysla
grænmetis og ávaxta fólk meira aðlaðandi.
Hollt
heimapopp
Það er leikur einn að búa til sitt
eigið heimagert örbylgjupopp
án þess að vera með áhyggjur af
óhollustunni því ekki þarf að nota
salt og smjör eða olíu frekar en
maður vill. Allt sem þarf er bréf-
poki og baunir en fjallað er um
þetta á matarkarfan.is. Þar segir að
magn poppbaunanna sé valfrjálst
og að heimapoppið sé bæði ódýr-
ara og hollara en keypt örbylgju-
popp. Heimapopparinn ber því
ábyrgð á hollustunni sjálfur.
Græna
bomban
Heilsudrykkurinn græna bomban
er afskaplega vinsæll hjá þeim er
hafa tekið heilsuna í gegn. Í henni
er möndlumjólk sem er prótein-
rík, spínat sem er ríkt af andox-
unarefnum og fólinsýru. Það
inniheldur mikið af A-, C- og K-
vítamíni svo einhver séu nefnd. Í
grænu bombuna fer líka kókosolía
og hörfræolía.
Drykkur fyrir 2
1½ bolli möndlumjólk
Handfylli spínat
Handfylli frosið mangó
1 banani
1 msk. grænt duft
2 msk. kókósolía
2 msk. hörfræolía
2 msk. hveitikím
Setjið möndlumjólkina í blandar-
ann og bætið spínatinu út í. Látið
það blandast vel áður en frosnum
ávöxtunum er bætt út í. Þá er ban-
anum bætt út í.
Bætið kókosolíu út í ásamt
hörfræolíunni. Hrærið saman.
Hveitikímið er sett varlega út í.
Drekkið.