Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Síða 7
7
Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005
Menntarannsóknir og hlutverk TUM
Gretar L. Marinósson
Kennaraháskóla Íslands
Tímarit um menntarannsóknir (TUM) sem
gefið er út af Félagi um menntarannsóknir
(FUM) er að slíta barnsskónum með öðru
tölublaði sínu. Ritstjórn TUM hefur mótað
þá stefnu fyrir tímaritið að það sé virk rödd
í menntamálum; umræðuvettvangur þar
sem forsendur og eðli rannsókna sé rætt
og niðurstöður rannsókna séu nýttar í
umræðunni.
Nýlega hafa verið kynntar niðurstöður
úttektar á menntarannsóknum hérlendis,
en vinna við úttektina hófst árið 2002. Í
lokaskýrslunni er fjallað um rannsóknir sem
unnar eru í háskólum, rannsóknastofnunum,
leik-, grunn- og framhaldsskólum og í atvinnu-
lífinu. Aðstæður til rannsókna við þessar ólíku
stofnanir og fyrirtæki eru afar misjafnar,
eins og gefur að skilja, en ein niðurstaða
úttektarinnar er að auka þurfi bolmagn til
menntarannsókna á öllum þessum stöðum. Til
þess þarf ekki einungis að þjálfa rannsakendur
og bjóða þeim sæmilega aðstöðu heldur þurfa
rannsakendur einnig að velja viðfangsefni
sín af kostgæfni og efla árangur sinn með
samvinnu. Í úttektinni er sérstök áhersla
lögð á birtingarvettvang því að ekki nægir
að skrifa bara fyrir aðra rannsakendur. Ef
niðurstöðum er ekki komið til skila til notenda,
stjórnmálamanna og iðkenda er ólíklegt að þær
hafi áhrif á ákvarðanir um menntamál eða veki
athygli fjármögnunaraðila.
Tilgangur þeirra sem sinna menntarann-
sóknum er í flestum tilvikum sá að hafa áhrif
til bóta og því mikilsvert að hafa aðgang að
fjölbreyttum birtingarvettvangi. Þar er TUM
einn valkostur, en auk þess má nefna tímaritið
Uppeldi og menntun og nettímaritið Netlu,
hvorutveggja gefin út af Rannsóknarstofnun
KHÍ, hið fyrrnefnda í samstarfi við HÍ og HA;
Glæður, sem gefið er út af Félagi íslenskra
sérkennara, Skólavörðuna sem gefið er út
af Kennarasambandi Íslands og Tímarit
Heimilis og skóla sem samtök foreldrafélaga
á landinu gefa út. Auk þess fjalla nokkur
sérhæfðari félagsrit og glanstímarit stundum
um menntamál. Rannís á þakkir skilið fyrir að
bjóða kynningar á rannsóknarniðurstöðum á
almannafæri og á mannamáli eins og gert var
nokkrum sinnum á haustmánuðum.
Ástæða er til að vekja athygli á því í þessu
samhengi að tilraunir til að sanna hagnýtt
gildi menntarannsókna hér á landi stangast á
við það kerfi sem umbunar háskólakennurum
fjárhagslega mest fyrir fræðigreinar sem birtar
eru í viðurkenndum erlendum tímaritum.
Erfiðara er að fá mörg rannsóknarstig fyrir
grein í íslensku tímariti eða umfjöllun um
skólaþróunarverkefni sem birtist í fagtímariti
kennara eða á vef skóla. Ekki er til dæmis
skortur á efni frá háskólakennurum til birtingar
í þessu riti en erfitt að afla efnis frá kennurum
annarra skólastiga sem ekki fá prik fyrir ritverk
Pistillinn