Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Side 44
44
Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005
löndum. Inntökupróf tíðkast til dæmis á Spáni
og í Svíþjóð hefur verið þróað próf (SWE-
SAT) sem miðast sérstaklega við að meta
námsgetu fólks sem gert hefur hlé á námi
sínu um lengri eða skemmri tíma (Stage,
1999). Evrópskir háskólar hafa oft minna frelsi
en bandarískir skólar til að velja fólk inn í
skólana, þó að vissulega megi finna allnokkrar
undantekningar. Algengara er að þeir sem
uppfylla lágmarkskröfur komist inn og leyfist
að spreyta sig á náminu.
Reynsla af inntökuprófum
á Íslandi
Lög um háskóla (136/1997) heimila að nem-
endum sem uppfylla lágmarksskilyrði til
inngöngu í háskóla sé gert skylt að gangast
undir inntökupróf eða stöðupróf. Lítið hefur
verið um að slík próf séu notuð, nema í
listnámi, en þó verða hér rakin tvö dæmi.
Tækniháskóli Íslands (THÍ) gerði tilraun
árið 2001 með inntökupróf í rekstrardeild
og byggðist það próf á stærðfræði, ensku
og bókfærslu og var haldið í kjölfar undir-
búningsnámskeiðs. Reynslan af þeirri tilraun
sýndi að umsóknum fækkaði nokkuð, einkum
umsóknum frá eldri nemendum og fólki sem
ekki kom beint úr framhaldsskóla, með þeim
afleiðingum að hópurinn sem tekinn var inn
það árið var heldur einsleitari en ella. Þar sem
deildin hefur haft það að markmiði að hafa
fjölbreyttan nemendahóp var inntökuprófið
ekki notað aftur (Sverrir Arngrímsson, munn-
leg heimild, 12. 9. 2005).
Læknadeild HÍ tók upp eigið inntökupróf árið
2003 og hefur notað það síðan og þróað áfram.
Prófið byggist á námsefni framhaldsskóla í
skilgreindum námsgreinum og áföngum og
á almennri þekkingu (Háskóli Íslands, e.d.).
Læknadeildin telur reynsluna af inntökuprófinu
vera góða þótt ekki hafi enn verið gerðar
rannsóknir á forspárgildi prófsins fyrir gengi í
náminu (Kristján Erlendsson, munnleg heimild,
17. 8. 2005). Forsvarsmenn læknadeildar telja
það meginkost inntökuprófsins að aðferðin sé
manneskjulegri en numerus clausus, þar sem
menn þurfi ekki lengur að hefja nám í þeirri
vissu að fjölmargir muni heltast úr lestinni eða
sitja í mjög fjölmennum fyrirlestrum á fyrsta
misseri. Notkun prófsins sparar deildinni þó ekki
fjármuni, því þessi aðferð er kostnaðarsamari
fyrir deildina en numerus clausus. Þá telur
læknadeild að stúdentar séu almennt mjög sáttir
við að notað sé inntökupróf, að minnsta kosti
ef marka má fjölda kvartana og fyrirspurna
(Kristján Erlendsson, munnleg heimild, 17. 8.
2005).
Frekari rannsókna er þörf til að meta kosti
og galla þess að nota inntökupróf hér á landi.
Reynsla THÍ bendir til þess að háskóladeildir
sem eru í samkeppni um nemendur innanlands
verði að gera ráð fyrir að notkun inntökuprófs
leiði til færri umsækjenda, einkum úr þeim hópi
sem ekki er nýútskrifaður úr framhaldsskóla.
Reynsla læknadeildar bendir til þess að deild
sem er sú eina sinnar tegundar innanlands eigi
auðveldara með að innleiða inntökupróf, þó
enn vanti rannsóknir á forspárgildi þess prófs.
Markmið þeirrar athugunar sem hér er kynnt
er að kanna hvort stutt próf sem mælir almenna
hugræna getu spáir fyrir um einkunnir við
háskóla, og ef svo er, hvort það að bæta
slíku prófi við núverandi inntökuviðmið gæfi
háskólum viðbótarupplýsingar sem gætu nýst
til að bæta árangur þeirra sem komast inn. Búist
er við því að tengsl hugrænnar getu við árangur
í háskólanámi verði sterk og marktæk, enda
nýtist almenn hugræn geta betur en nokkur
annar mælanlegur getu- eða persónuleikaþáttur
í forspá um árangur á starfsferlinum (Schmidt
og Hunter, 2004), auk þess sem fyrri athuganir
á því prófi sem notað er hér sýna verulegan
mun eftir menntunarstigi (Wonderlic, 1992).
Aðferð
Þátttakendur: Þátttakendur voru 85 nemar
við Háskólann í Reykjavík (HR), 45 konur
og 40 karlar, 69 í viðskiptadeild og 16 í
tölvunarfræðideild. Rannsóknin hófst í janúar
2002 þegar flestir þátttakendur voru á fyrsta
ári í háskólanámi. Þegar rannsókninni lauk,
þremur og hálfu ári síðar, var 71 þátttakandi
(84%) útskrifaður með 90 eininga B.Sc.-gráðu
Gildi stúdentsprófseinkunnar og hugrænnar getu