Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Qupperneq 59
59
Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005
umhverfi sitt og sem sagt vera hæfur
einstaklingur sem að getur hafnað og
valið í framtíðinni.
Aðrir töluðu um barnið sem rannsakanda
sem finnur eigin lausnir en töldu hlutverk
leikskólakennarans vera að greina áhuga
barnsins jafnóðum, skipuleggja starfið
með hliðsjón af því og fylgja ferlinu eftir.
Einn viðmælenda sagði t.d. um barnið sem
rannsakanda: „... eins og Piaget segir að
þau fái að rannsaka og læra í gegnum sínar
rannsóknir“. Um skipulag starfs sem byggist
á áhuga barnsins tók einn leikskólastjórinn
dæmi af því þegar leikskólakennararnir höfðu
ákveðið að vinna verkefni um haustið en
börnin sýndu því engan áhuga. Hún sagði:
Þá reynir maður að athuga hvar
áhugasvið barnsins liggur ... það var
svo fyndið að þær á gulu deild voru
að tala um það að þær væru búnar að
ákveða að taka haustið og allt það en
síðan voru börnin miklu meira upptekin
af ljóni heldur en hausti ...
Annar leikskólastjóri sagði frá því að í
sínum leikskóla væri lögð áhersla á að börnin
leituðu sjálf að lausnum. Hún sagði:
Þau eru aldrei að leita að annarra
lausnum, þau eru heldur aldrei að glíma
við neitt sem þeim getur mistekist í,
þau eru bara með þennan opna efnivið
þannig að þau skapa sinn leikheim
hverju sinni ... og ef þau læra þannig
að skapa líf sitt þá trúi ég að þau muni
halda áfram og ná að skapa líf sitt líka
sem eldri einstaklingar.
Samskipti og félagslegir þættir
Leikskólastjórarnir sem talað var við litu á
það sem eitt af meginmarkmiðum leikskólans
að efla félagsfærni barnanna og stuðla að
góðum samskiptum. Í viðtölunum nefndu svo
til allir viðmælendur þætti sem falla undir
samskipti og félagslega þætti, svo sem að efla
félagslega færni, að vinna með samskipti, efla
umburðarlyndi, tillitssemi og vináttu. Áhersla
á mikilvægi góðs félagslegs andrúmslofts
meðal barna og fullorðinna birtist í orðum
leikskólastjóra sem sagði:
Hér í leikskólanum leggjum við aðal-
áherslu á að efla meðal barnanna
mannkærleika, samkennd, umburðar-
lyndi og vináttu. Við viljum skapa gott
félagslegt andrúmsloft í vel skipulögðu
uppeldisumhverfi, þar sem börn og
starfsfólk fái notið og þroskað eiginleika
sína fordómalaust. Þessar leiðir hefur
starfsfólkið farið yfir á hverju hausti.
Þetta er það sem við viljum að fólk
tileinki sér, að sýna öllum virðingu ...
Mjög margir nefndu mikilvægi þess að
börnunum liði vel og þau væru glöð og
ánægð í leikskólanum. Vinátta og friðsamleg
samskipti barna á milli var flestum ofarlega
í huga. Báðir þessir þættir komu fram í
orðum eins leikskólastjórans og lýsa um leið
vel viðhorfum margra. Hún sagðist telja að
markmið leikskólastarfsins væri „... að stuðla
að því að gleði sé ríkjandi í leikskólanum, að
stuðla að vináttu og friði meðal barna“. Annar
komst þannig að orði: „Það á að vera gaman
hér í leikskólanum. Þetta á að vera svona: Björt
eru bernskuárin ...“
Margir leikskólastjóranna töluðu um að þeir
legðu áherslu á að börnin lærðu að bera
virðingu fyrir öðru fólki og viðhorfum annarra.
Einn viðmælandinn sagðist t.d. leggja áherslu
á: „... að börnin læri að bera virðingu fyrir
sjálfum sér og öðrum og umhverfinu, að þau
sem sagt séu í svona gleðiríku umhverfi“.
Sumir nefndu einnig mikilvægi þess að geta
sett sig í spor annarra og læra með því móti
að virða aðra. Einn viðmælenda ræddi þetta á
þennan hátt:
Það sem við þurfum að huga verulega
að í þessum heimi og kannski erum við
að stíga þau skref hér í leikskólanum
og það er að huga að samskiptum og
virðingu fyrir öðrum og tilfinningum
annnarra ... ef við vinnum vinnuna
okkar í leikskólanum, þá kannski
minnkar eineltið.
Í viðtölunum kom einnig fram áhersla á
mikilvægi þess að barninu finnist það vera
hluti af heild og það finni að það sé þátttakandi
í leikskólasamfélaginu. Talað var um mikilvægi
þess að barnið fái að vaxa og dafna með öðrum
börnum og læri að vera hluti af lýðræðislegu
Hvernig tala leikskólastjórar um leikskólann?