Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Síða 69

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Síða 69
69 Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005 Hvernig mæla á hugsmíðar með erlendum mælitækjum: Þýðing og staðfærsla á spurningalistum og prófum Sigurgrímur Skúlason Námsmatsstofnun Markmiðið með því að þýða og staðfæra mælitæki, til dæmis spurningalista eða próf, er að útbúa mælitæki sem aflar upplýsinga um hugsmíð með sama hætti í þýðingarlandi og frumútgáfa mælitækisins gerir. Ákveðnar próffræðilegar forsendur þarf að uppfylla til að það sé mögulegt. Í fyrri hluta greinarinnar er fjallað um próffræðilíkan sem dregur þessar forsendur fram en í síðari hluta er vinnuferli við þýðingu og staðfærslu lýst. Próffræðilíkanið er notað til að skilgreina nákvæmlega markmið með þýðingu og staðfærslu mælitækja og hvaða forsendur þurfa að vera til staðar svo að vel takist til. Líkanið hjálpar jafnframt við að draga fram afleiðingar af hnökrum eða ónákvæmni í þýðingu og skýrir um leið tilgang og mikilvægi ákveðinna verkhluta. Í síðari hluta greinarinnar verður ferlinu, þ.e. verkþáttum við þýðingu og staðfærslu á mælitækjum, lýst. Þessir verkþættir eru: Undirbúningur, þýðing og aðlögun texta, endurbætur, stöðlun (ef við á) og útgáfa. Byggt er á almennt viðurkenndu verklagi en hér er reynt að draga fram sjálfstæði verkþátta með skýrari hætti en áður hefur verið gert. Fjallað er stuttlega um verkþættina og þeir skilgreindir með það að markmiði að þeir sem þurfa að þýða og staðfæra mælitæki fái raunhæfar forsendur til að skipuleggja vinnuferlið. Hlutverk mælitækja er að afla upplýsinga. Í þessari grein verður fjallað um mælitæki þar sem tungumál í formi spurninga og svara er notað í mælingarferlinu. Slík tæki eru þróuð til að mæla tiltekna hugsmíð eða þekkingarsvið hjá ákveðnum markhópi (Crocker og Algina, 1986; Millman og Greene, 1989). Í mörgum fræðigreinum og starfi fagstétta eru slík mælitæki notuð til að safna upplýsingum með kerfisbundnum hætti. Þau eru notuð m.a. í félags- og hugvísindum, menntageiranum, læknis- og hjúkrunarfræði og viðskiptafræði og mæla hugsmíðar eins og þunglyndi, sjálfsmynd, stjórnmálaskoðanir, neysluvenjur, heilbrigðissögu og félagslegan bakgrunn. Oft er talið æskilegt að flytja stöðluð greiningartæki, t.d. kunnáttu- og réttindapróf, spurningalista, mats- og gátlista og spurningaramma fyrir viðtöl milli málsvæða, en hlutur tungumáls í slíkum mælitækjum gerir það erfitt. Þýðingu og staðfærslu verður að haga með þeim hætti að upplýsingar sem fást Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005, 69–81 Hagnýtt gildi: Þýðing og staðfærsla á mælitækjum, til dæmis spurningalistum eða prófum, lýtur öðrum lögmálum en aðrar þýðingar. Markmið slíkra þýðinga er að þýtt og staðfært mælitæki gefi sambærilegar upplýsingar og frumútgáfa þess en blæbrigði textans skipta ekki máli. Fjallað er um hvað einkennir próffræðilega eiginleika staðfærðra þýðinga og vinnuferlinu við þýðingu þeirra er lýst. Greinin er ætluð fagfólki og rannsakendum sem starfa á sviði félagsvísinda, menntamála, heilbrigðismála og fleiri sviðum og þurfa að nota staðfærðar þýðingar mælitækja eða standa sjálf að þýðingu og staðfærslu þeirra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.