Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 76

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 76
75 Óhreinlæti Grænlendinga og mataræði þeirra voru vinsæl umræðuefni í þessu samhengi og rætt um sóðaskap þeirra, daun í híbýlum og tötralegan klæðnað. Helst ætu þeir hálffrosið eða hálfrotið selkjöt eins og aðrar þjóðir snæddu pylsur og teldu það hnossgæti. Sumir ætu jafnvel af slíkri græðgi að þeir köstuðu upp en vildu samt halda áfram átinu.34 Hýenur virtust fremur kunna sér magamál en þeir. Þeir ætu jafnvel eigin lýs eða byðu gestkomandi þær sem lostæti. Bandaríkjamaðurinn Isaac I. Hayes fullyrti þó að þessir hættir væru ekki bundnir við Grænlendinga. Svipaðar fregnir væri að hafa af búskmönnum í sunnanverðri Afríku.35 Hér eru „eiginleik- ar“ Grænlendinga því gerðir skiljanlegir með því að líkja þeim við hýenur, búskmenn eða þá páfagauka og apa, fólk og dýr í Afríku þar sem talið var að villimennskan réði ríkjum. Sumar lýsingar fjölluðu um illsku og grimmd heimamanna, svo sem miskunnarleysi gagnvart öldruðum og hjálparlausum, grimmd gagnvart vandalausum og þjófnað frá útlendingum. Sögur um þjófnað voru algeng- ar en þó var á það bent að sumir frumbyggjar annars staðar í heiminum, t.d. á eyjum í Kyrrahafi, væru enn verr haldnir af þessum lesti.36 Töluvert var einnig rætt um að grænlenskar konur reyndu að tæla leiðangurs- menn eða þá að þær seldu sig og það afar ódýrt, og fengju jafnvel leyfi eigin mannsins.37 Undirferli og svik Grænlendinga komu líka við sögu.38 „Eskimóar“ gætu því vart staðið neðar hvað varðar siðmenningu. Þeir stæðu t.d. frumbyggjum Ameríku langt að baki en væru þó Afríkumönnum fremri.39 Kynþáttahyggja skiptir miklu máli í þessu samhengi. Fræðimenn á 18. og 19. öld tóku sér fyrir hendur að sanna „vísindalega“ að fólk utan hins vestræna heims væri ekki búið sömu hæfileikum og Evrópumenn. 34 Isaac I. Hayes, An Arctic Boat-Journey in the Autumn of 1854, bls. 44, 128–129 og víðar. – Robert Huis, The Last Voyage of Capt. Sir John Ross, bls. 505. 35 John Ross, Narrative of a Second Voyage in a Search of a North-West Passage, and of a Residence in the Arctic Regions, During the Years 1829, 1830, 1831, 1832, 1833 … Including the Reports of Commander, now Captain, James Clark Ross …… and the Dis- covery of the Northern Magnetic Pole, Brussel: Ad. Wahlen, 1835, bls. 179, 249–250, 313–314. – Robert Huis, The Last Voyage of Capt. Sir John Ross, bls. 249. 36 David Crantz, The History of Greenland I, bls. 188–195. – Robert Huis, The Last Voyage of Capt. Sir John Ross, bls. 238. 37 Robert Huis, The Last Voyage of Capt. Sir John Ross, bls. 192, einnig bls. 244 og 524. 38 Isaac Israel Hayes, An Arctic Boat-Journey in the Autumn of 1854, bls. 167; einnig bls. 169, 231. Hayes staðhæfði að Inúítar hefðu ætlað að láta hunda sína drepa hann en hann hefði bjargað sér með snarræði. 39 Robert Huis, The Last Voyage of Capt. Sir John Ross, bls. 246. INNAN EÐA UTAN EVRÓPU?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.