Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Síða 99
98
ur sem sameini einstaklinga, ekki aðeins í ást og hjónabandi, heldur einnig
í vináttu og áhugamálum.28
Sameiningartáknið Austen er meginviðfangsefni Jane Austen leshrings-
ins. Þar hittast fimm konur og einn karl sem lesa og ræða sögur Austen
hverja á eftir annarri. Sérhver skáldsagnanna sex verður einskonar lykill
að lífssögu lesendanna, rétt eins og William Deresiewicz lýsti þegar hann
speglaði lífshlaup sitt í sögum Austen, og með þessum hætti varpa þær
ljósi á sjálfsmyndir og fjölskyldubönd. Lesandinn er jafnframt hvattur til
þess að bera sögupersónur Austen saman við þær sem eru í leshringnum.
Mánuðina sem leshringurinn fundar bindast einstaklingarnir vináttubönd-
um, pör treysta samband sitt, persónurnar verða ástfangnar og almennar
breytingar verða á högum þeirra, sem rekja má m.a. til þess sjálfsskilnings
sem bækur Austen veita þeim.
Í bók Elizabeth Long er mótandi máttur lesturs settur í samhengi
við viðtökufræðilegar kenningar Wayne Booth, Adam Zachary Newton
og Mörthu Nussbaum, en öll eru þau á þeirri skoðun að lestur geti haft
umbreytingu í för með sér, jafnt fyrir sjálfsmynd einstaklingsins og sam-
félagið allt þegar svo ber undir. Nussbaum segir lesendur geta dregið
siðferðilegan lærdóm af lestri bóka vegna þess að þeir taki þátt í lífi ann-
arrar persónu. Þeir setji sig inn í lífshlaup hennar og þurfi að sýna henni
hluttekningu. Skáldsögur geti þannig verið kennslustundir í siðferðilegum
viðhorfum.29 Wayne Booth segir óhjákvæmilegt að lesandinn bregðist við
persónum og sögufléttum með hliðsjón af eigin reynslu, út frá öðrum
manneskjum sem hann hafi kynnst og þeim sögum sem hann hafi áður
lesið. Lestrarreynslan veki upp svipuð viðbrögð og bein samskipti við
annað fólk. Samkvæmt Adam Zachary Newton fylgist lesandinn með lífi
persónunnar; hann er sér meðvitaður um siðferðilegar áherslur sögunnar
og þær hafa áhrif á skilning hans á textanum. Long gagnrýnir Newton og
Booth fyrir að taka ekki tillit til þess hversu mismunandi lestur getur verið
og bækur fjölbreytilegar. Booth viðurkenni að menningarleg umgjörð hafi
28 Sjá m.a. Lori Smith, A Walk with Jane Austen. A Journey into Adventure, Love &
Faith, Colorado Springs, CO: WaterBrook Press, 2007; Amy Elizabeth Smith, All
Roads Lead to Austen. A Yearlong Journey With Jane, Naperville, Ill: Sourcebooks,
2012; Laurel Ann Nattress, ritstj., Jane Austen Made Me Do It, New york: Ballantine
Books, 2011; Nancy Moser, Just Jane. A Novel of Jane Austen’s Life, Minneapolis,
MN: Bethany House Publishers, 2007; og Lynn Shepherd, Murder at Mansfield
Park, London: Beautiful Books, 2010.
29 Elizabeth Long, Book Clubs: Women and the Uses of Reading in Everyday Life, bls.
24.
ALDA BJÖRK VALDIMARSDÓTTIR