Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Síða 101
100
glímdu oft við dauðann. Þau gerðu það af yfirvegun og raunsæi. Hvernig
takast þú og fjölskylda þín á við dauðann? Er til ákjósanlegasta leiðin til
þess?“34 Spurningalistarnir eiga að auðvelda lesandanum að sjá sjálfan sig
í frásögninni og hvetja hann til þess að skoða bókina á persónulegan hátt.
Lesturinn á jafnframt að varpa ljósi á fjölskyldulíf lesandans, vekja spurn-
ingar um vináttubönd, mannlegt eðli og viðhorf hans til lífs og dauða.
Long segir lestur vera menningarlega iðju, hegðun sem þjóni flóknu
persónulegu og samfélagslegu hlutverki. Þegar konur komi saman til þess
að ræða bækur séu þær oft að leita að vitsmunalegum samböndum sem þær
finni ekki annarsstaðar. Þær séu kannski að auka á þekkingu sína á bók-
menntum eða bókmenntatúlkun, eða þá að stíga fram sem menningarlega
og bókmenntalega sinnaðir einstaklingar. Með lestrinum og umræðunum
styðji þær hver við aðra í samfélagslegum aðstæðum sínum. Konurnar
endurspegli ekki aðeins sína eigin sjálfsmynd í lestri, heldur endurmóti
sjálfsveru sína á nýjum forsendum.35 Í leshringjunum myndi þær ný tengsl,
nýja merkingu og komi á tilfinningalegum samböndum við persónurnar í
bókunum, við höfundana, við sig sjálfar, við hinar konurnar í hringnum,
við samfélag sitt og menningarheim. Þær eru í raun réttri að endurskapa
sjálfar sig í samræðunni við bókmenntatextann og aðra þátttakendur les-
hringsins. Lestrarferlið er því flókið samspil sjálfsvera; sjálfsmynd höf-
undarins er að einhverju leyti bundin skrifunum og lesandinn getur verið
opinn fyrir breytingum á meðan hann les.36
Janice A. Radway tekur undir lýsingu Long í bók sinni A Feeling for
Books, en þar lýsir hún m.a. þeim öflum sem stýrðu lestrarþörf hennar
sjálfrar. Þar stendur upp úr þekkingarþrá, löngun eftir ástarsamböndum
og þörfin að tjá sig og deila upplifunum sínum, en ekki löngun til að leggja
mat á, útskýra, greina á milli eða dæma.37 Lestur snýst þannig um það að
treysta sambandið við aðra, um tjáningu, um þörfina fyrir að miðla löng-
unum sínum og reynslu með öðrum.
34 Nancy Moser, Just Jane. A Novel of Jane Austen’s Life, bls. 366.
35 Elizabeth Long, Book Clubs: Women and the Uses of Reading in Everyday Life, bls. 22.
Sjá einnig Janice Radway, A Feeling for Books: The Book-of-the-Month Club, Literary
Taste, and Middle Class Desire, Chapel Hill og London: The University of North
Caroline Press, 1997, bls. 114.
36 Elizabeth Long, Book Clubs: Women and the Uses of Reading in Everyday Life, bls.
22.
37 Janice A. Radway, A Feeling for Books. The Book-of-the-Month Club, Literary Taste,
and Middle-Class Desire, bls. 7–8.
ALDA BJÖRK VALDIMARSDÓTTIR