Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Side 138

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Side 138
137 urðardómar gætu haft almennt gildi, en væru ekki bara persónubundin upplifun; „að réttur og ótvíræður mælikvarði [á fegurð] sé til einhvers staðar, nefnilega raunveruleg tilvera og staðreynd“, eins og Hume orðar það.78 Kant telur að fegurðardómar geti haft almennt gildi, einmitt vegna þess að þeir hafi þá sérstöðu að vera bæði huglægir og ákvarðandi í senn. Forsenda þess sé ákveðið hagsmunaleysi dómarans, því ef fegurðardómar byggi á hagsmunalausri velþóknun hljóti þeir að hvíla á einhverjum grund- vallareiginleika sem okkur er öllum sameiginlegur (þ. Gemeinsinn eða lat. sensus communis).79 Enn í dag vekja fræðikenningar sem taldar eru ógna þessari hugmynd um sammannlegan, huglægan og tilfinningatengdan grundvöll ásakanir um andlausa menntamenn sem misnoti fræðin og ógni ekki aðeins bókmennt- unum heldur raunverulegum skilningi á mannlegri tilvist. Árið 1987 segir Berglind Gunnarsdóttir til dæmis að vísindaleg rökhugsun sé „takmörk- uð“, hún greini „ekki öngstræti sálarlífsins“ og þvingi „listina út í horn“. Líkt og „bókmenntamaðurinn“ Allen Tate telur hún að nútímamaðurinn sé „ekki heilsteyptur“ og segir það „sök meðal annars vísindahyggjunnar sem hefur svipt efnið sálinni og sálina efninu“. Hún vekur jafnframt upp ímynd brjálaða vísindamannsins og hættulegra, sálarlausra fræða hans þegar hún segir að „hörmulegastur“ sé gagnrýnandinn „er hann pakkar þröngsýn- inni inn í búnað annarlegrar heiftar og ofstækis og bindur síðan utan um allt saman með ástlausri sýn sinni á mannlegan veruleika og viðleitni“.80 Árið 2012 dregur Friðrik Erlingsson, þýðandi söngleiksins Vesalinganna, upp svipaða mynd í athugasemdum við gagnrýni Maríu Kristjánsdóttur og Símonar Birgissonar á verkið í sjónvarpsþættinum Djöflaeyjunni á RÚV. Í grein Friðriks eru gagnrýnendur og almenningur andstæður og andstæð- ingar. Hann segir að á meðan „gagnrýnendur og menningarpáfar um ver- öld víða“ hafi frá því það kom út „hneykslast, urrað, hvæst og öskrað yfir þessu verki“ hafi „hinir almennu lesendur sögunnar“ og síðar leikhúsgestir „tekið þessu verki fagnandi, tekið ástfóstri við persónurnar, tónlistina og fundið sterkan hljómgrunn með boðskap sögunnar“. Ástæðan er sú, að 78 David Hume, „Um mælikvarðann á smekk“, bls. 37. 79 Þetta þýðir að ekki munu allir samþykkja slíka dóma heldur ganga gagnrýnendur út frá því að allir ættu að gera það; að hægt sé að krefjast altæks samþykkis um fegurðardóma eins og hlutlæg lögmál. Immanuel Kant, Kritik der Urteilskraft, bls. 48–49, 53–54, 81–82, 141 og 143–144. 80 Berglind Gunnarsdóttir, „Er ljóðið glataður tími? Til varnar skáldskapnum“, Tímarit Máls og menningar, 3/1987, bls. 268-273, hér bls. 268, 269 og 272. Á SLÓÐUM HJARTALAUSRA FRÆÐINGA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.