Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 151
150
Ekki hefur reynst auðvelt að skilgreina módernísk tímarit – frekar en
módernisma. Sumar þeirra skil greininga sem settar hafa verið fram eiga þar
að auki misvel við Birting; móderníska tímaritið er innflutt útgáfuform sem
hefur verið lagað að íslenskum aðstæðum. Í því samhengi verður til dæmis
að hafa í huga að skilgreiningar á litlum tímaritum miðast margar við rit frá
tímabili sögulegu framúrstefnunnar. Hópurinn sem stóð að baki Birtingi er
heldur ekki að öllu leyti sömu gerðar og hreyfingarnar sem gáfu út tímarit á
öðrum og þriðja áratugnum. Rekstraraðstæður voru á hinn bóginn að mörgu
leyti líkar. Hönnun Harðar Ágústssonar setti mikinn svip á ritið og átti eftir
að hafa talsverð áhrif. Útlitið miðlaði módernískri fagurfræði. Samvinna
Harðar og Dieters Roth um hönnun á einu hefti árið 1957 setur ritið svo í
beint samband við nýja strauma í grafískri hönnun og myndlist í Evrópu um
leið og hún tengir ritið við hefð gagnrýni litlu tímaritanna á markaðshyggju
og auglýsingaiðnað. Af þessu má sjá að Birtingur er ekki aðeins vettvangur
fyrir innflutning á verkum sem tilheyrðu módernískri hefð heldur verður
ritið einnig farvegur fyrir hræringarnar sem áttu sér stað á útgáfutímanum í
(einkum) evrópsku listalífi.
Rekja má þá hefð að tala um lítil tímarit allt aftur til aldamótanna
1900.13 Hvað einkunnin „lítil“ merkir í þessu samhengi hefur aftur á móti
verið á reiki. Í riti sínu árétta Hoffman, Allen og Ulrich að litlu tímaritin
hafi ekki verið kölluð því nafni vegna þess að þau hafi verið í litlu broti, birt
litlar bókmenntir eða ekki greitt fyrir efni. Orðin hafi umfram allt vísað til
þess að tímarit af þessu tagi höfðuðu til eða gerðu út á afmarkaðan hóp
upplýstra (e. intelligent) lesenda en til þess að falla undir þá skilgreiningu
þurfti fólk að kunna skil á bókmenntastefnunum sem tímaritin stóðu fyrir
og hafa að auki áhuga á að kynna sér dadaisma, vortisisma, expressjón-
isma og súrrealisma. Í vissum skilningi væri þessi tegund tímarita því ekki
réttnefnd lítil, árétta þeir, betur færi á að segja hana í framvarðasveitinni
(e. advance guard).14 Stóru tímaritin, sem hafa meiri útbreiðslu og byggja
13 Peter Brooker og Andrew Thacker, „General Introduction“, The Oxford Critical and
Cultural History of Modernist Magazines. Volume I, Britain and Ireland 1880–1955, bls.
12–13 (nmgr. 34).
14 Einar Bragi talar um „framúrrit“ í Birtingsgrein þar sem hann fjallar meðal annars
um tímaritaútgáfu á Norðurlöndum á sjöunda áratugnum. Einar Bragi, „Af skornum
skammti“, Birtingur 1–3/1966, bls. 86. Hér eftir verður vísað til Birtings, bæði eldra
og yngra tímaritsins, með númeri heftis, ári og blaðsíðutali innan sviga. Á sama stað
notast hann einnig við orðið „smárit“. Hugtakið „lítil tímarit“ kemur fyrir í grein
Hjörleifs Sigurðssonar um „Mondrian, De Stijl og Nýplastíkina“ í öðru hefti 1960
(22) en þar vitnar hann í formála Théos van Doesburgs að tímaritinu De Stijl.
ÞRÖSTUR HELGASON