Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Síða 160
159
„fallegasta tímarit á Íslandi“37 en hafa mætt „órökstuddri andúð í ríkari
mæli en flest þau tímarit önnur, sem beint hafa flug á síðari árum“ eins og
hann kemst að orði.38 Bjarni Benediktsson frá Hofteigi segir svo í annarri
grein að ekki leiki það á tveimur tungum að Birtingur sé „um ytri búnað
veglegasta tímarit í landinu“ en skoðanir séu skiptar um efni hans. Að hans
mati hefur ritið þó á skömmum tíma orðið „einskonar ein ing ar tákn hinnar
ungu listakynslóðar, enda eina umtalsverða tímaritið sem gert er eftir höfði
hennar“.39 Báðir þessir menn voru áskrifendur að Birtingi og höfðu skrifað
í hann. Hugsanlega óskuðu Birtingsmenn eftir því að þeir veittu þeim lið
í söfnuninni.40 Að minnsta kosti virðast svo að segja allir angar hafa verið
hafðir úti á meðan hún fór fram, enda skilaði hún 380 nýjum áskrifendum
sem verður að teljast umtalsverður árangur. Með átakinu rýmkast fjárhagur
Birtings. Samkvæmt rekstrarreikningi 1957, sem er undirritaður 4. janúar
1958, eru 1.703 krónur í sjóði. Ári seinna er þessi tala komin upp í 13.750
krónur samkvæmt ársreikningi sem er undirritaður 22. febrúar 1959.
Talsverð drift er í útgáfunni árin eftir áskrifendaátakið í byrjun árs 1957
og ritstjórnin sér litlar ástæður til þess að skrifa pistla um ágæti ritsins eða
hvetja kaup endur til að greiða áskriftargjöld. Ein slík grein birtist reyndar
í fyrsta hefti 1960 en þar er fyrst og fremst brugðist við fyrirspurnum um
hvað fáanlegt sé af eldri Birtings heftum (34). Það er ekki fyrr en í 4.–5. hefti
1961 að skrifuð er ritstjórnar grein með ákalli um fjölgun áskrifenda. Þessi
grein er raunar merkileg, ekki aðeins fyrir eld móð inn og bjartsýnina sem
einkennir hana heldur einnig vegna þess að þar er staða tíma ritsins skil-
greind. Sagt er að árgangarnir hafi nákvæmlega haldið áætlun, sem var að
gefa út fjögur hefti á ári eða samanlagt tíu arkir, og „aldrei h[afi] Birtingur
verið við betri heilsu en nú“. Árgangarnir hafi allir sjö verið stærri en miðað
væri við í árgjaldinu og nemi „samanlögð umframútgáfa hátt í þrem heft-
um“ (62). Áðurnefnt hefti með ljóðaflokki Jóhanns Hjálmarssonar fái kaup-
endur aukalega án endurgjalds. Síðan er vikið að starfsgrundvelli ritsins,
fjárhagslegum, pólitískum og fagurfræðilegum:
37 Heimir Steinsson, „Nokkur orð um Birting“, Verkamaðurinn 8. mars 1957, bls. 3.
38 Heimir Steinsson, „Nokkur orð um Birting“, Verkamaðurinn 1. mars 1957, bls. 5.
39 B.B., „Minnt á Birting“, bls. 7.
40 Athygli vekur að Bjarni Benediktsson skrifar hnýflótta grein í annað hefti Birtings
árið eftir og kallar efnið í heftinu á undan „resept upp á svefnpillur“ (49). Hann
segist reyndar í byrjun greinar eiga það sameiginlegt með guði að: „við ögum þá
sem við elskum“ (48).
MÓDERNÍSKA TÍMARITIÐ BIRTINGUR