Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 164

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 164
163 Markaður og módernismi Önnur tekjulind Birtings var lengst af auglýsingasala í ritið. Hlutfall auglýs- inga í Birtingi er svipuð því sem gengur og gerist í módernískum menningar- tímaritum eða yfirleitt á bilinu 10 til 20% af efni ritsins.47 Í fjórða hefti 1957 varð auglýsingahlutfallið einna hæst eða 22% og það skilaði 5.650 krónum í kassann sem voru þá ríflega mánaðarlaun verkamanns.48 Fyrst í stað birtast auglýsingar á öftustu síðum heftanna og á baksíðunni, vandlega aðskildar frá öðru efni. Þýsk-svissneski myndlistarmaðurinn Dieter Roth, sem hannar fyrsta heftið 1957, nýfluttur til Íslands, býr á hinn bóginn til áhugaverða skörun á milli ritstjórnarefnis og auglýsinga sem heldur að hluta til áfram í tölublöðum næstu ára. Roth dreifir ekki aðeins auglýsingasíð- unum innan um annað efni heftisins heldur hannar hann þær sjálfur þannig að þær falla vel að heildarútlitinu (sjá mynd 1). Sama leturgerð er notuð í texta auglýsinganna og í greinum heftisins og hvorki vörumerki né myndir hafðar á síðunum (undantekningin eru þrjár auglýsingar aftast í heftinu). Auglýsingasíðurnar eru gular og að frátöldum textunum – oftast afar stuttum – brýtur ekkert upp síðurnar nema negatífir borðar, eða fletir, sem allir eru í sömu stærð. Guli liturinn og borðarnir gera það að verkum að auglýsing- arnar eru auðmerkjanlegar í heftinu – stundum eru þó fleiri en eitt fyrirtæki að auglýsa á hverri síðu og ekkert sem aðgreinir skilaboð þeirra sjónrænt annað en (autt) rýmið á milli textanna – en samræmt útlitið dregur úr þeirri tilfinningu að þær birtist þar eins og aðskotahlutir. Við þetta fá auglýsing- arnar ekki aðeins aukið vægi í útliti heftisins heldur taka þær þátt í að miðla módernískri fagurfræði Birtingsmanna. Hin hreinu form í auglýsingunum skírskota greinilega til strangflatarlistarinnar sem hafði náð nokkurri rótfestu í íslenskri myndlist á sjötta áratugnum, meðal annars í málverkum Harðar Ágústssonar og kápuhönnun hans fyrir Birting, sem sótti fyrstu tvö árin tals- vert til Bauhaus-hreyfingarinnar. Þess má líka geta að Hörður vann umrætt hefti með Roth.49 47 Auglýsingahlutfall í módernískum tímaritum var sjaldan meira en 10%. Sjá Robert Scholes og Clifford Wulfman, Modernism in the Magazines. An Introduction, New Haven og London: yale University Press, 2010, bls. 60. 48 Hagtíðindi, mars 1981, bls. 52–53. 49 Sjá Guðmund Odd Magnússon, „Til almennings. Framlag Harðar Ágústssonar til grafískrar hönnunar“, Hörður Ágústsson. Endurreisnarmaður íslenskra sjónmennta, Reykjavík: Listasafn Reykjavíkur, 2005, bls. 50–61, hér bls. 51. Í greininni segir að Hörður hafi gert kápumynd heftisins en Roth „snúið henni við“ – væntanlega hefur hann snúið henni á haus. MÓDERNÍSKA TÍMARITIÐ BIRTINGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.