Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Síða 175

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Síða 175
174 þeir væru „æði sundurleitur hópur á margan hátt með ólíkar skoðanir“, eins og segir í ávarpinu (1/1955, 1), og styddust ekki við „nein stjórnmálasamtök“ (3–4/1958, 73, og víðar). Lesendur ritsins virtust einnig sumir hverjir óvissir um pólitískan lit Birtings ef marka má frásagnir ritstjórnarmanna af árásum frá jafnt vinstrimönnum og hægrimönnum (sjá t.d. 3/1956, 38). Þessi aðskiln- aður frá hinu (flokks)pólitíska sviði er margoft undirstrikaður í ritinu með því að vísa til óbeitar ritstjórnarinnar á „dægurþrasi þjóðmálanna“ og atvinnu- pólitíkusum sem listamönnum sé tamast að líta á „sem aumkunarvert slekti til einskis hlutar nýtilegt nema ef til vill sem skotmark“ (3/1956, 38). Þessi markvissa staðsetning hópsins gagnvart, og að vissu leyti gagnstætt, hinu pólitíska sviði birtir tilhneigingu módernista til þess að hefja sig og listina yfir dægurmálin en hún þýðir ekki að Birtingsmenn hafi verið ópólitískir enda hlutu þeir „nokkurt ámæli fyrir vítaverðan stjórnmálaáhuga“ ekki síður en „vítavert sinnuleysi um slík efni“ (3/1956, 38). Þessi staðsetning „utan og ofan við“ setti Birtingsmenn í sterka pólitíska vígstöðu, sérstaklega í upphafi. Dagný hefur eftir Sveini Skorra Höskuldssyni að „það væri einkenni- legt að á sjötta og sjöunda áratugnum hefðu verið í landinu tvö rithöfunda- félög og tvö bókaforlög sem gáfu út sitt hvort tímaritið með gagnstæðum pólitískum og fagurfræðilegum stefnumiðum en í þeim hafi engin umræða farið fram og þau hafi ekki verið vettvangur skoðanaskipta af neinu tagi“.72 Dagný samsinnir þessu og bætir við að átök hafi „sannarlega ekki [verið] daglegt brauð í tímaritunum þó að þau sæjust stöku sinnum, mun vænlegra [sé] að leita þeirra í ritdómum dagblaðanna því þar fór bókmenntaumræða líðandi stundar fram og þar voru ekki spöruð stóru orðin og létu hvorki hægri né vinstri menn sitt eftir liggja“.73 Báðar þessar fullyrðingar eru hæpnar, að minnsta kosti segja þær ekki nema hluta sögunnar. Birtingur er skýrt dæmi þess að bókmenntaumræða líðandi stundar fór víðar fram en í dagblöðunum. Raymond Williams segir að módernismi í sinni róttækustu mynd gangi ekki aðeins út á að vinna að framgangi ákveðinnar tegundar af list heldur einnig að ráðast gegn samfélagslegu og menningarlegu skipulagi í nafni þessarar listar.74 Margt gefur til kynna að módernistar hér á landi hafi 72 Sama heimild, bls. 446. 73 Sami staður. Væntanlega vísar Dagný hér eingöngu til tímaritanna tveggja sem hún nefnir fyrr, Tímarits Máls og menningar og Félagsrits Almenna bókafélagsins, en það er þó ekki gefið sérstaklega til kynna. 74 Raymond Williams, „The Politics of the Avant-Garde“, Politics of Modernism. Against the New Conformists, London: Verso, 1989, bls. 49–63, hér bls. 51. ÞRÖSTUR HELGASON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.