Peningamál - 01.11.2000, Qupperneq 11

Peningamál - 01.11.2000, Qupperneq 11
10 PENINGAMÁL 2000/4 í ár svo að tölurnar skekkist ekki vegna samruna Íslandsbanka og FBA. Þar sést að erlent lánsfé á áfram stærstan þátt í að fjármagna útlánaaukningu en hrein Seðlabankafjármögnun er neikvæð. Upplýsingar liggja fyrir um útlán lánakerfisins í heild 4 á fyrri helmingi ársins. Útlán þess höfðu auk- ist heldur minna en útlán bankanna eingöngu, eins og verið hefur undanfarin ár, eða 17% yfir 12 mánuði. Hafði vöxtur útlána haldist nokkuð stöðugur í u.þ.b. heilt ár. Útlán til atvinnuvega höfðu aukist um 26% eða jafn mikið og á sama tíma í fyrra. Útlán til heim- ilanna höfðu vaxið um 19% og er þar um nokkra aukningu að ræða frá fyrra ári, en samdráttur var í útlánum til ríkissjóðs og ríkisstofnana, sem höfðu dregist saman um tæpan fjórðung á 12 mánuðum. Vísbendingar um vaxandi spennu á vinnumarkaði, en hún hefur enn ekki birst í auknu launaskriði. Þótt margt bendi til þess að velta vaxi hægar á þessu ári en því síðasta heldur spenna á vinnumarkaði áfram að aukast. Dregið hefur jafnt og þétt úr atvinnuleysi á árinu. Í september sl. var það 0,9%, eða 1,1% sé leiðrétt fyrir árstíðarsveiflu. Eftir því sem atvinnuleysi minnkar eykst spenna á vinnumarkaði, en ekki endi- lega í réttu hlutfalli. Því meira sem gengur á varasjóð vinnufærs fólks í landinu verður erfiðara að finna starfsfólk sem hefur þá hæfni, menntun eða reynslu sem til þarf. Fjölgun lausra starfa hjá vinnumiðlunum gefur vísbendingu um hversu mikið spennan á vinnu- markaði hefur aukist að undanförnu. Fjöldi starfa sem eru í boði hjá vinnumiðlunum hefur tekið stökk upp á við sl. mánuði. Hið sama var reyndar uppi á teningnum sumarið 1999, en nú er fjöldinn mun meiri og hinn mesti á yfirstandandi hagvaxtarskeiði. Könnun Þjóð- hagsstofnunar á atvinnuástandi sem gerð var í sept- ember 2000 gefur sömu mynd. Atvinnurekendur á landinu öllu vildu fjölga starfsfólki um 630 manns, sem er meira en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að atvinnurekendur á landsbyggðinni vildu fækka um 390 manns. Mest eftirspurn er eftir fólki í byggingariðnaði og þjónustu. Könnunin sýnir því að eftirspurn eftir vinnuafli fer ekki einungis vaxandi heldur líka mis- vægið á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Í vaxandi mæli hafa innlend fyrirtæki og stofnan- ir þurft að leita eftir erlendu starfsfólki til að manna ýmis þjónustu- og framleiðslustörf. Á tímabilinu janúar-september voru veitt 2.549 ný og framlengd atvinnuleyfi, samanborið við 2.047 á sama tíma árið 1999. Fyrstu níu mánuði ársins fluttust 1.122 fleiri einstaklingar til landsins en frá því, aðallega erlendir ríkisborgarar. Þetta er ívið meiri aðflutningur en á sama tíma árið 1999. Samkvæmt nýlegri úttekt má áætla að erlendir ríkisborgarar á Íslandi séu nú rúm- lega 7.000, u.þ.b. 2.000 fleiri en fyrir 3 árum. Þessi aðflutningur kann að hafa skipt sköpum um að halda spennunni á íslenskum vinnumarkaði í skefjum. Þjóðhagsáætlun: Dregur úr hagvexti, en horfur um viðskiptahalla verri en áður Í október sl. var lögð fram þjóðhagsáætlun fyrir árið 2001, sem gerð fjárlaga fyrir árið byggir á. Helsta breytingin frá síðustu spá Þjóðhagsstofnunar, sem lögð var fram í júní sl., er að gert er ráð fyrir meiri vexti utanríkisviðskipta, einkum innflutnings. Innflutningur er nú talinn munu vaxa um 7% frá fyrra ári, en í júní var reiknað með 4,7% vexti. Þrátt fyrir aukinn halla á utanríkisviðskiptum, bæði vöru og þjónustu, er eigi að síður reiknað með örlitlu minni viðskiptahalla, í krónum talið, en í júníspánni. Það skýrist að öllu leyti af breyttum aðferðum við upp- gjör þáttatekna, eins og greint verður frá nánar síðar. Hlutfall hallans af landsframleiðslu eykst hins vegar lítillega eða í 8%. Fyrir skömmu gerði Þjóðhags- stofnun grein fyrir endurskoðun á uppgjörsaðferðum þjóðhagsreikninga og fylgir stutt samantekt um helstu breytingar í ramma 1.5 Breytingarnar hafa í för Atvinnuleyfi og störf í boði 1997-2000 J M M J S N J M M J S N J M M J S N J M M J S 1997 1998 1999 2000 0 100 200 300 400 500 600 700 800 Veitt atvinnuleyfi Störf í boði Mynd 5 3 mánaða hreyfanlegt meðaltal Heimild: Vinnumálastofnun. 4. Auk bankanna teljast til lánakerfisns fjárfestingarlánasjóðir atvinnu- veganna, Íbúðalánasjóður, lífeyrissjóðir, tryggingarfélög, eignarleigur, verðbréfasjóðir og lánasjóðir ríkisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.