Peningamál - 01.11.2011, Qupperneq 17
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
1
•
4
17
í stað 23% í ágústspánni. Ekki er spáð miklum hækkunum á næsta
ári en þó er gert ráð fyrir að hrávöruverð haldi velli að einhverju leyti
vegna áframhaldandi aukningar eftirspurnar frá nýmarkaðsríkjum,
einkum í Asíu. Vegna þeirra miklu verðhækkana sem áttu sér stað í
upphafi árs 2011 verður meðalverð fyrir árið 2012 þó lægra en í ár.
Verð sjávarafurða hækkar enn en álverð hefur lækkað mikið
Verð sjávarafurða hefur haldið áfram að hækka það sem af er ári og
er meðalverð á fyrstu átta mánuðum ársins um 13% hærra en á sama
tíma fyrir ári. Verðhækkunin nær til allra afurða þótt dregið hafi úr
verðhækkunum á fiskmjöli og er því spáð að verð þess muni lækka
hratt á næstu mánuðum. Gert er ráð fyrir að verð sjávarafurða muni
hækka um hátt í 10% á þessu ári, sem er heldur meiri hækkun en gert
var ráð fyrir í síðustu spá Peningamála. Jafnframt er spáð nokkru meiri
hækkun á næsta ári, eða rúmlega 6% í stað 4% í ágúst, þar sem gert
er ráð fyrir að eftirspurn haldi áfram að ýta undir verðhækkanir.
Álverð styrktist framan af ári en tók að lækka upp úr því miðju í
takt við almennt lækkandi hrávöruverð. Mikil verðlækkun varð síðan
í september en þá var verðið um 15% lægra en meðalverð á fyrstu
átta mánuðum ársins. Engu að síður er gert ráð fyrir að álverð á árinu
2011 verði rúmlega 16% hærra en í fyrra, sem er svipað og gert var
ráð fyrir í síðustu Peningamálum. Þrátt fyrir þessa miklu verðlækkun
í september er verðhækkunin fyrir árið í heild svipuð þar sem þjóð-
hagsreikningar fyrir annan ársfjórðung benda til þess að íslensku
álfyrirtækin hafi selt álafurðir á verði töluvert yfir heimsmarkaðsverði í
þeim fjórðungi, en spá Seðlabankans frá því í ágúst var byggð á þróun
heimsmarkaðsverðs. Horfur um álverð fyrir næstu ár eru svipaðar og
í ágústspánni.
Viðskiptakjör batna
Miklar breytingar hafa orðið á alþjóðlegri verðþróun á þessu ári. Á
fyrri hluta ársins hækkaði útflutningsverðlag umtalsvert. Verð olíu
og almennrar hrávöru hækkaði einnig mikið. Viðskiptakjörin á fyrri
hluta ársins voru því verulega neikvæð og verri en áður hafði verið
reiknað með. Eins og rakið er hér að framan hefur álverð og verð olíu
og hrávöru lækkað mikið á seinni hluta ársins en verð sjávarafurða
hækkað. Viðskiptakjaraáhrif þessara sviptinga hafa á heildina verið
jákvæð. Viðskiptakjörin á þessu ári batna því um 0,9% en í síðustu
Peningamálum var gert ráð fyrir að þau myndu versna um 2,2%.
Horfur fyrir næsta ár hafa einnig batnað verulega, sérstaklega vegna
lægra olíuverðs, og er nú gert ráð fyrir að viðskiptakjör batni um
tæp 4% á næsta ári en verði svo nánast óbreytt út spátímann. Þessi
viðsnúningur nær þó ekki að bæta upp mikla rýrnun viðskiptakjara
undanfarinn áratug.
Raungengi enn mjög lágt í sögulegu samhengi
Mælt í erlendum gjaldmiðli hefur kostnaðarstig hér á landi lækkað
mikið á undanförnum fjórum árum sem hefur bætt samkeppnis-
stöðu samkeppnis- og útflutningsatvinnugreina og þar með stutt
við útflutning þrátt fyrir verulegan samdrátt í alþjóðaviðskiptum í
kjölfar fjármálakreppunnar. Sveigjanleikinn hér á landi til að takast á
1. Verð á hrávöru án olíu í USD.
Heimildir: Macrobond, Seðlabanki Íslands.
Vísitala, meðaltal 2000 = 100
Mynd II-7
Heimsmarkaðsverð á hrávöru1
1. ársfj. 2003 - 4. ársfj. 2014
Heimsmarkaðsverð á hrávöru
PM 2011/3
PM 2011/4
50
100
150
200
250
300
350
‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03 ‘14
90
100
110
120
130
140
150
1.000
1.375
1.750
2.125
2.500
2.875
3.250
Heimildir: Hagstofa Íslands, London Metal Exchange, Seðlabanki Íslands.
Vísitala, jan. 1999 = 100
Mynd II-8
Verð á sjávarafurðum og áli
Í erlendum gjaldmiðli
Verð sjávarafurða (v. ás)
Álverð (h. ás)
- Spá -
$/tonn
‘13‘11‘05 ‘07 ‘09‘03‘01‘99
1. Grunnspá Seðlabankans 2011-2014. Framlag helstu undirliða til
ársbreytingar viðskiptakjara er fengið með því að vega saman árlega
breytingu viðkomandi undirliðar með vægi hans í út- eða innflutningi
vöru og þjónustu. Liðurinn „annað“ er afgangsliður.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Breyting frá fyrra ári (%) Vísitala
Mynd II-9
Viðskiptakjör og framlag undirliða
2000-20141
Sjávarafurðaverð (v. ás) Álverð (v. ás)
Framlag viðskiptakjara þjónustu (v. ás)
Hrávöruverð (v. ás) Olíuverð (v. ás)
Annað (v. ás) Viðskiptakjör vöru og þjónustu (h. ás)
Viðskiptakjör vöru og þjónustu (v. ás)
-20
-15
-10
-5
0
5
10
15
‘14‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00 84
87
90
93
96
99
102
105