Peningamál - 01.11.2011, Blaðsíða 76
ANNÁLL
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
1
•
4
76
fasta vexti og eru gefin út til fimm ára á ávöxtunarkröfunni 4,993%.
Kjörin jafngilda 3,20% álagi á vexti á millibankamarkaði. Fjárfestar
sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 2 milljörðum
Bandaríkjadala.
Hinn 10. júní 2011 samþykkti Alþingi lög nr. 64/2011, um breytingu
á lögum nr. 65/2007, um losun gróðurhúsalofttegunda. Breytingin
bindur í lög viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.
Hinn 10. júní samþykkti Alþingi lög nr. 78/2011, um breytingu á
lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Breytingarnar styrkja ráð-
stöfunarrétt kröfuhafa og slitastjórna á eignum, rétt kröfuhafa í öðru
ríki gagnvart riftun, setja hæfniskröfur fyrir setu í slitastjórn, staðfesta
eftirlitsrétt Fjármálaeftirlitsins gagnvart slitastjórnum og skilanefndum
og kveða á um skyldu þeirra til að kynna kröfuhöfum allar umtals-
verðar ráðstafanir.
Hinn 10. júní samþykkti Alþingi ályktun nr. 42/139 um að skipuð skyldi
nefnd til að rannsaka fall sparisjóðanna.
Hinn 11. júní samþykkti Alþingi lög nr. 70/2011, um breytingar á stjórn
fiskveiða. Lögin auka heimildir til strandveiða og úthluta viðbótarafla
í nokkrum tegundum gegn gjaldi. Frádráttur vegna byggðakvóta og
strandveiða leggst framvegis að hluta á allar veiðiheimildir fremur en
heimildir í viðkomandi fisktegund og í strandveiðum er þrengt að fjöl-
skipaútgerðum. Byggðakvóti er aukinn, veiðigjald hækkað úr 9,5% í
13% af reiknaðri framlegð og 15% af því renna til sveitarfélaga.
Hinn 11. júní samþykkti Alþingi lög nr. 73/2011, sem lögfestu atriði í
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga í maí.
Hinn 11. júní samþykkti Alþingi lög nr. 81/2011, sem framlengdu
tímabundna heimild Seðlabanka Íslands til að takmarka eða stöðva
tiltekna flokka fjármagnshreyfinga og gjaldeyrisviðskipti vegna þeirra
til 30. september 2011.
Hinn 14. júní tilkynnti Fjármálaeftirlitið að það hefði samþykkt sam-
runa Avant hf. og SP fjármögnunar hf. við Landsbankann hf. undir
nafni Landsbankans.
Hinn 15. júní ákvað peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að halda
vöxtum bankans óbreyttum. Vextir á viðskiptareikningum fjármála-
fyrirtækja voru því áfram 3,25%, hámarksvextir á 28 daga innstæðu-
bréfum 4,0%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,25% og dag-
lánavextir 5,25%.
Hinn 16. júní bauðst Seðlabankinn til að kaupa evrur gegn greiðslu
í ríkisverðbréfum. Útboðið var liður í losun gjaldeyrishafta. Markmið
aðgerðanna var að endurheimta þann gjaldeyri sem Seðlabankinn
nýtti til kaupa á aflandskrónum í fyrra útboði og selja krónur aðilum
sem tilbúnir voru til að eiga þær í a.m.k. fimm ár. Bauðst Seðlabankinn