Peningamál - 01.11.2011, Blaðsíða 78
ANNÁLL
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
1
•
4
78
Hinn 14. júlí tilkynnti umboðsmaður Alþingis Seðlabanka Íslands
að Hagsmunasamtök heimilanna (HH) teldu að reglur bankans nr.
492/2001, um verðtryggingu, skorti lagastoð. Samkvæmt 13. gr.
vaxtalaga nr. 38/2001 bæri að verðbæta greiðslur af lánum en ekki
höfuðstól eins og reglurnar kvæðu á um. Því teldu HH innheimtu fjár-
málastofnana á verðtryggðum kröfum óheimila. Í svarbréfi 30. ágúst
benti Seðlabankinn á að reglurnar væru settar samkvæmt fyrirmælum
í lögunum og að í framkvæmd væru greiðslur ætíð hinar sömu hvort
sem farið væri eftir orðalagi laga eða reglna. Því gæti ekki verið um
brot á lögmætisreglunni að ræða.
Hinn 15. júlí gaf sjávarútvegsráðherra út reglugerð samkvæmt nýsett-
um lögum og hækkaði veiðigjald á ígildi þorskkílós um 6,44 krónur í
9,46 krónur. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af gjaldinu hækka úr 2,7 ma.kr.
á ári í 4,5 ma.kr. Stafar hækkunin bæði af auknum aflaheimildum og
hækkun veiðigjaldsins.
Hinn 21. júlí tilkynnti Fjármálaeftirlitið að það hefði afturkallað starfs-
leyfi Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf.
Hinn 26. júlí kom út ríkisreikningur fyrir árið 2010. Gjöld ríkissjóðs um-
fram tekjur námu 123 ma.kr. samborið við 139 ma.kr. árið 2009. Tekjur
án vaxta hækkuðu um 13½% vegna hækkunar skatttekna. Gjöld
hækkuðu um 4% milli ára og fóru 7½% fram úr fjárlögum. Ef litið er
fram hjá vöxtum, lífeyrisskuldbindingu, töpuðum kröfum og öðru sem
tengist efnahagsáfallinu 2008, lækkuðu gjöld um 3% að nafnvirði og
nær 8% að raunvirði og stóðust fjárlög á þann mælikvarða.
Hinn 28. júlí var tilkynnt að Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. hefði
gengið frá sölu á 52,4% hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. í sam-
ræmi við kaupsamning frá 18. janúar 2011. Kaupandi er SF1 slhf.,
félag í umsjón Stefnis hf. Viðskiptin hafa hlotið samþykki Fjármálaeftir-
litsins og Samkeppniseftirlitsins.
Ágúst 2011
Hinn 2. ágúst bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa alls 72 milljónir
evra gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Útboðið var liður í losun hafta á
fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjald-
eyrishafta frá 25. mars 2011. Markmið aðgerðanna var að endurheimta
þann gjaldeyri sem Seðlabankinn nýtti til kaupa á krónum í fyrra útboði
og selja krónur aðilum sem voru tilbúnir til að eiga þær í a.m.k. fimm ár.
Hinn 4. ágúst var greint frá því að EFTA-dómstóllinn hefði úrskurðað
að íslenskum stjórnvöldum væri óheimilt að áskilja að starfsmenn, sem
sendir eru tímabundið til Íslands, skuli njóta réttinda sem áskilin eru
Íslendingum á íslenskum vinnumarkaði, ef réttindin eru umfram það
sem greint er í tilskipun Evrópusambandsins um lágmarksvernd þess-
ara starfsmanna.
Hinn 16. ágúst greindi Seðlabanki Íslands frá niðurstöðum gjaldeyrisút-
boðs sem lagt var fram 2. ágúst með útboðsfjárhæð 72 milljónir evra.