Peningamál - 01.11.2011, Qupperneq 24
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
1
•
4
24
unum umhverfis Reykjavík hefur aukningin verið mest í Kópavogi.2 Á
landinu í heild er veltuaukningin heldur minni eða 52%. Í kjölfar fjár-
málakreppunnar eignuðust Íbúðalánasjóður, bankar og eignarhalds-
félög í eigu bankanna nokkurt hlutfall af íbúðaeignum miðað við veltu
á íbúðamarkaðnum. Fjallað er nánar um áhrif þess á húsnæðisverð í
rammagrein III-1.
Þróun húsnæðisverðs eftir fjármálakreppuna hefur verið í ágætu
samræmi við þróun ráðstöfunartekna. Samkvæmt grunnspánni mun
húsnæðisverð þróast nokkurn veginn í takt við almennt verðlag á
næstu árum.
Íbúðalánasjóður, bankar og eignarhaldsfélög í eigu bankanna hafa
eignast fjölda íbúða í kjölfar fjármálakreppunnar. Í lok september sl.
voru tæplega 2.500 íbúðir í eigu þessara aðila eða um 1,9% íbúða
á landinu. Til samanburðar má nefna að þinglýstir kaupsamningar
voru rúmlega 4.600 á síðasta ári og á fyrstu átta mánuðum þessa árs
hefur um 3.700 samningum verið þinglýst.1 Líkt og sjá má í töflu 1
eiga þessir aðilar rúmlega þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eða
um 1,3% íbúða á því svæði. Til samanburðar seldust tæplega 3.000
íbúðir á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári og rúmlega 3.200 íbúðir á
fyrstu átta mánuðum ársins.
Tæplega fjórðungur íbúða í eigu þessara aðila er í byggingu (um
550 talsins). Erfitt er að nálgast nákvæma talningu á fjölda íbúða í
byggingu á landinu, en Hagstofa Íslands áætlaði að um 5.000 íbúðir
væru í byggingu um sl. áramót. Samkvæmt samantekt sem Samtök
iðnaðarins gerðu í apríl sl. var áætlað að fjöldi íbúða á höfuðborgar-
svæðinu væri rúmlega 1.600.
Um 40% íbúða í eigu Íbúðalánasjóðs, banka og eignarhalds-
félaga eru í útleigu og gera má ráð fyrir að í flestum tilvikum séu þær
leigðar út til fyrri eigenda eða til þeirra sem áður leigðu húsnæðið af
þeim. Ef gert er ráð fyrir að fullbúnar íbúðir sem ekki eru í útleigu séu
til sölu er um tæplega þúsund íbúðir að ræða. Eignir til sölu á fast-
eignavef Morgunblaðsins hafa að meðaltali verið um 4.760 það sem
af er ári. Einhver hluti íbúða í eigu þessara aðila er auglýstur á þeim
vef, þar sem fasteignasölur sjá um sölu þeirra í langflestum tilvikum.
1. Þegar Íbúðalánasjóður, bankar eða eignarhaldsfélög í þeirra eigu yfirtaka íbúðir af gerð-
arþola verður ekki til eiginlegur kaupsamningur með markaðsvirði og því eru slíkir samn-
ingar hvorki taldir með í gögnum um veltu né verð á fasteignamarkaði. Þegar þessir
aðilar selja eignirnar loks á markaði koma þær aftur á móti fram í þessum gögnum.
2. Fjöldi kaupsamninga er áberandi mestur í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ.
Rammagrein III-1
Íbúðir í eigu
Íbúðalánasjóðs og
banka
Hlutfall Fjöldi kaup- Fullbúnar
Fjöldi íbúða á samninga Íbúðir í Íbúðir í íbúðir ekki
íbúða svæðinu árið 2010 útleigu byggingu í útleigu
Höfuðborgarsvæðið 1.026 1,3 2.956 444 337 245
Suðurnes 462 4,7 236 115 62 285
Vesturland 278 4,2 209 124 70 84
Vestfirðir 48 1,4 123 10 19 19
Norðurland 131 0,8 502 66 4 61
Austurland 214 4,0 194 72 13 129
Suðurland 323 3,4 417 152 46 125
Samtals 2.482 1,9 4.637 983 551 948
Tafla 1 Íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs, banka og eignarhaldsfélaga