Peningamál - 01.11.2011, Síða 50

Peningamál - 01.11.2011, Síða 50
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 1 • 4 50 atvinnuleit hefur einnig tilhneigingu til að minnka eftir því sem fólk er lengur án atvinnu. Langtímaatvinnuleysi kann því að auka þá tregðu sem ávallt er við miðlun atvinnulausra í laus störf og stuðla að hækkun jafnvægisatvinnuleysis. Aukið langtímaatvinnuleysi er síðan líklegt til að draga úr færni vinnuaflsins og gera þannig vinnumarkaðnum erfiðara að leiða saman starfsfólk með ákveðna þekkingu og fyrirtæki sem þurfa á slíkri þekkingu að halda.2 Uppbygging atvinnuleysisbótakerfisins getur einnig dregið úr hvata atvinnulausra til að taka þeim störfum sem í boði eru og þannig aukið jafnvægisatvinnuleysi. Hlutfall bóta af launum (e. replacement ratio) skiptir máli en einnig hve víðtækur réttur til þeirra er, lengd bótaréttar er og hvernig reglum er framfylgt. Einnig skiptir máli hvort launatengdur kostnaður atvinnurekenda hafi aukist. Bótaréttur var styttur úr fimm árum í þrjú árið 2006 þar sem talið var líklegt að fólk væri ekki virkt í atvinnuleit eftir þriggja ára atvinnu- leysi. Bótaréttur var síðan aukinn tímabundið í fjögur ár frá og með 1. janúar í ár fyrir þá sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur í fyrsta skipti eftir 1. maí 2008. Rökin fyrir þeirri breytingu voru þau að áætlað var að um tvö þúsund einstaklingar (rúmlega 40% langtímaatvinnulausra í ár) myndu tæma rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins í ár. Breytingin á að falla úr gildi í lok þessa árs verði hún ekki framlengd. Þrátt fyrir að atvinnuleysi sé töluvert meira og framboð starfa minna en í fyrri niðursveiflum, má gera ráð fyrir að sömu rök eigi við nú og þegar bótaréttur var styttur í þrjú ár árið 2006, þ.e. að fólk sé ekki virkt í atvinnuleit eftir þrjú ár. Þótt eftirlit og aðgerðir Vinnumálastofnunar séu mun skilvirkari nú en á fyrri atvinnuleysis- skeiðum, má sjá á mynd VI-5 að hagur þeirra sem fara í lægst launuðu störfin vænkast lítið ef eitthvað við að fara í launaða vinnu þar sem munur á atvinnuleysisbótum og lægstu launum er orðinn óverulegur.3 Meirihluti OECD-ríkja greip til einhverra úrræða til að bæta öryggisnet atvinnulausra í núverandi niðursveiflu, svo sem hækkunar atvinnuleysis- eða félagslegra bóta eða aukningar bótaréttar. Ísland 2. Sjá t.d. O. J. Blanchard og J. Wolfers (2000). The role of shocks and institutions in the rise in European unemployment: The aggregate evidence. Economic Journal, 110, C1-C33, C. Gianella, I. Koske, E. Rusticelli og O. Chatal (2009). What drives the NAIRU? Evidence from a panel of OECD countries. OECD Economics Department Working Paper No. 649 og Andreas Mueller og Alan B. Krueger (2010), „Job search and unemployment insurance: New evidence from time use data“, Journal of Public Economics, 94, 298-307. 3. Atvinnuleysisbætur voru hærri en lágmarkstekjutrygging þar til að hún var hækkuð verulega á árunum 1997-1998. Á árunum 2002-2008 hækkuðu hins vegar atvinnuleysis- bætur töluvert umfram bæði lágmarkstekjutryggingu og meðallaun verkafólks. Þótt hlutfall atvinnuleysisbóta af bæði lágmarkstekjutryggingu og meðaltali reglulegra launa verkafólks hafi lækkað á árunum 2010 og 2011 er það enn töluvert hærra en það var í niðursveiflunni í byrjun aldarinnar. Heimildir: Hagstofa Íslands, Samtök atvinnulífsins, Vinnumálastofnun. Mynd VI-5 Atvinnuleysisbætur sem hlutfall af launum 1998-2011 % Atvinnuleysisbætur sem hlutfall af reglulegum launum verkafólks Atvinnuleysisbætur sem hlutfall af lágmarkstekju- tryggingu 0 20 40 60 80 100 ‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99‘98 árunum 2009 og 2010 fóru um 3.200 einstaklingar af atvinnuleysis- skrá vegna flutnings af landi brott. Án búferlaflutninga þessa hóps hefðu atvinnulausir að öðru óbreyttu verið um 11% fleiri árið 2009 og rúmum 10% fleiri árið 2010 sem samsvarar því að atvinnuleysi, samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar, hefði verið um 1 pró- sentu meira bæði árin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.