Peningamál - 01.11.2011, Side 52

Peningamál - 01.11.2011, Side 52
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 1 • 4 52 Horfur um atvinnuleysi og atvinnu svipaðar og í ágúst Atvinnuleysishorfur næstu þriggja ára eru svipaðar og þær voru í síðustu spá, þó heldur verri á seinni hluta spátímabilsins. Samkvæmt grunnspánni er gert ráð fyrir að mælt atvinnuleysi aukist á ný í um 7% snemma á næsta ári en að atvinnuleysi að teknu tilliti til árstíðar hafi þegar náð hámarki. Spáð er að atvinnuleysi haldi áfram að minnka eftir því sem efnahagsumsvif aukast og verði um 4½% í lok spátímans. Horfur eru á að atvinnuleysi verði heldur meira á árinu 2014 en spáð Rammagrein VI-2 Er aukning jafnvægisatvinnuleysis að ganga til baka? Svokölluð Beveridge-kúrfa sýnir samband eftirspurnar (framboð lausra starfa1 á lóðrétta ásnum) og framboðs (atvinnuleysi á lárétta ásnum) á vinnumarkaði. Atvinnuleysi og fjöldi starfa hreyfist jafnan í gagnstæðar áttir yfir hagsveifluna eftir línu sem hallar niður til hægri (NV-SA-lína). Breyting í eftirspurn eftir vinnuafli, sem endur- speglast í fjölda lausra starfa, leiðir alla jafna til breytingar í fjölda atvinnulausra. Beveridge-kúrfan getur hliðrast vegna breytinga á öðru hvoru eða hvoru tveggja í senn, eftirspurn eftir vinnuafli og framboði þess. Líklegt er að hliðrun kúrfunnar til hægri stafi af einhverjum þeim breytingum á stofnunum vinnumarkaðar sem hafa í för með sér að dregið hafi úr hæfni þeirra til að bregðast við áföllum. Þótt hliðrun kúrfunnar til hægri sé yfirleitt túlkuð sem merki um að jafn- vægisatvinnuleysi hafi aukist geta aðrir þættir einnig haft í för með sér hliðrun kúrfunnar eins og gerðist t.d. hér á landi á árunum 2003- 2005 (sjá nánar umfjöllun um ástæður hækkunar jafnvægisatvinnu- leysis í kafla VI). Eins og sjá má á mynd 1 hreyfðust atvinnuleysi og störf í boði á árunum 1996 til 2002 eftir NV-SA-línu í takt við hagsveifluna. Árið 2003 jókst hins vegar hvort tveggja samtímis, atvinnuleysi og fjöldi starfa, og olli því að kúrfan hliðraðist til hægri. Fram á síðasta fjórðung 2005 virðist sem nýtt jafnvægi hafi skapast þar sem mun fleiri störf virtist þurfa til að draga úr atvinnuleysi en áður. Þessi hliðrun kúrfunnar til hægri skýrist af því að atvinnurekendur vildu flytja inn vinnuafl en þurftu að auglýsa störfin og sýna fram á að ekki væri hægt að manna þau innanlands áður en þeir gátu sótt um atvinnuleyfi fyrir erlent vinnuafl.2 Árið 2003 var einmitt byrjað að auglýsa störf vegna stórframkvæmda við Kárahnjúka. Eftir að opnað var fyrir innflutning ríkisborgara frá E-8-lönd- unum,3 með samkomulagi á haustmánuðum 2005 en formlega í maí 2006, dregur úr framboði starfa þar sem ekki þurfti lengur að auglýsa til að sýna fram á að ekki væri hægt að manna störf innanlands. Við það fellur sambandið milli atvinnuleysis og fram- boðs starfa í fyrra far og er þar fram að fjármálakreppunni þegar atvinnuleysi tekur að aukast hratt og jafnvægisatvinnuleysi eykst. Myndin gefur hins vegar til kynna að tímabundin hækkun jafnvægisatvinnuleysis sé byrjuð að ganga til baka þar sem atvinnu- leysi hefur minnkað án þess að störfum fjölgi að ráði en eftir tíma- bundna en óútskýrða fjölgun starfa á sumarmánuðum 2009 hefur Beveridge-kúrfan verið nánast lárétt. 1. Þær tölur sem hér eru notaðar eru þær tölur sem Vinnumálastofnun safnar saman frá vinnumiðlunum (frá 1997). Nothæfar eldri tölur um framboð starfa hér á landi eru ekki til. Ekki eru öll laus störf auglýst hjá vinnumiðlunum en sambandið milli þeirra og atvinnuleysis ætti engu að síður að vera góður mælikvarði á samstillingu á vinnumark- aði. 2. Sjá Rannveig Sigurðardóttir (2005), „Ráðgátur á vinnumarkaði“, Peningamál 2005/1. 3. E-8-löndin eru Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ung verjaland. Heimild: Vinnumálastofnun. Mynd 1 Atvinnuleysi og laus störf 1. ársfj. 1996 - 3. ársfj. 2011 Laus störf, % af vinnuafli Atvinnuleysi (%) 0,0 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0 1,2 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ‘08/1 ‘07/1 ‘99/1 ‘06/1 ‘00/1 ‘01/1 ‘02/1 ‘04/1 ‘05/1 ‘03/1 ‘98/1 ‘96/1 ‘97/1 ‘11/3 ‘11/1 ‘10/1 ‘09/1

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.