Peningamál - 01.11.2011, Síða 77

Peningamál - 01.11.2011, Síða 77
ANNÁLL P E N I N G A M Á L 2 0 1 1 • 4 77 til að kaupa 64 milljónir evra gegn greiðslu í ríkisbréfaflokknum RIKS 30 0701. Hinn 23. júní greindi Þjóðskrá Íslands frá endurskoðun fasteignamats sem gildir við álagningu gjalda á árinu 2012. Heildarmat fasteigna á landinu hækkar um 6,8% og verður um 4.400 ma.kr. Heildarmat á íbúðarhúsnæði hækkar um 9%. Hinn 24. júní tilkynnti Fjármálaeftirlitið að það hefði afturkallað starfs- leyfi Sparisjóðsins í Keflavík vegna úrskurðar um slit sparisjóðsins. Hinn 28. júní fór fram gjaldeyrisútboð sem tilkynnt var um 16. júní. Alls bárust tilboð að upphæð 71,8 milljónir evra og var tilboðum tekið að upphæð 61,74 milljónir evra. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru boðin aðalmiðlurum á sama verði (e. single price) sem var ákvarðað 210,00 kr. fyrir hverja evru. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn fengu kaupendur afhent ríkisverðbréf í flokknum RIKS 30 0701. Júlí 2011 Hinn 4. júlí tilkynnti Fjármálaeftirlitið að stjórn þess hefði samþykkt reglur um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja eins og mælt var fyrir um með breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki. Árlegur kaupauki má ekki vera hærri en 25% af árslaunum án kaupauka og fresta skal greiðslu hluta kaupaukans um a.m.k. 3 ár. Bann er lagt við kaupauka án árangurstengingar. Hinn 5. júlí kynnti sjávarútvegsráðherra ákvörðun sína um heildarafla á fiskveiðiárinu 2011/2012. Heimilaður þorskafli er aukinn um 17 þús- und tonn, ýsuafli minnkaður um 5 þúsund tonn, karfaheimildir auknar um 12 þúsund tonn og heimildir alls um 32,5 þúsund tonn í þeim tegundum sem úthlutað var. Hinn 6. júlí bauðst Seðlabankinn til að kaupa íslenskar krónur gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri. Var útboðið liður í losun hafta á fjár- magnsviðskiptum. Bauðst bankinn til að kaupa 15 ma.kr. gegn greiðslu í evrum. Hinn 12. júlí tilkynnti Seðlabankinn niðurstöðu útboðs á gjaldeyri gegn greiðslu í íslenskum krónum sem kynnt var 6. júlí. Alls bárust tilboð að upphæð 52,2 ma.kr. og var tilboðum tekið fyrir 14,9 ma.kr. Lág- marksverð samþykktra tilboða var 215,00 kr. fyrir evru en meðalverð samþykktra tilboða var 216,33 kr. fyrir evru. Tilboðum sem voru yfir lágmarksverði var tekið að fullu en tilboð sem voru jafnhá lágmarks- verði voru samþykkt hlutfallslega miðað við hlutfallið 44,0%. Hinn 13. júlí var tilkynnt um samkomulag Byrs og Íslandsbanka um að bankinn leggi Byr til nýtt hlutafé og kaupi jafnframt hlut slitastjórnar Byrs og fjármálaráðuneytisins í sparisjóðnum. Fyrirtækin munu síðan sameinast undir merkjum Íslandsbanka að fengnu samþykki Sam- keppniseftirlitsins og FME.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.