Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 32

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 32
30 GLÓÐAFEYKIR Úr vinnslusal Fiskiðju Sauðárkróks. Frystihúsið var stækkað og Sauðárkróksbæ lánað fé til kaupa á skipinu Skagfirðingi. Þá var lánað nokkurt fé til kaupa á skipinu Pálínu árið 1960. Sama ár var keypt ísvél og reist íshús. En happadrýgsta ákvörðunin í þessu efni var stofnun Fískiðjunnar. En hana stofnaði kaupfélagið í samvinnu við Sauðárkróksbæ, um áramótin 1955-56. Samstarfið við Sauðárkróksbæ stóð í þrjú ár, en þá keypti kaupfélagið hlut bæjarins í fyrirtækinu. Hráefnisskortur stóð fiskvinnslunni fljótt fyrir þrifum. Bæði var, að erfitt var fyrir fiskverkafólkið að missa vinnuna þegar ekkert hráefni var til staðar og eins hitt, að rekstrarafkoma fiskvinnslunnar hlaut að batna ef hægt væri að afla hráefnis sem bærist allan ársins hring. Bæði Skagfirðingur og Pálína, sem miklar vonir höfðu verið bundnar við. hurfu á braut eftir tiltölulega skamman tíma vegna fjárhagserfiðleika þeirra aðila, sem áttu skipin. Það er svo i ársbyrjun 1968, sem Utgerðarfélag Skagfirðinga er stofnað með þátttöku kaupfélagsins og fyrsti togarinn Drangey kom sama ár. Hegranesið var keypt 1971. Útgerðarfélagið rekur nú þrjá togara og Fiskiðjan festi kaup á þeim fjórða nú um síðastliðin áramót. Með tilkomu togaranna hefur atvinnulífið gjörbreyst og májafnvel tala um byltinu í því efni.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.