Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 37

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 37
GLOÐAFEYKIR 35 Við opnun útibús K.S. í Varmahlíð 1968. Guðmann Tobíasson útibússtjóri, Sveinn Guðmundsson kaupfélagsstjóri, Tobías Sigurjónssonformaður stjórnar, Halldór Benediktsson deildarstjóri. Útibúið í Varmahlíð Meðan samgöngur voru erfiðar og vegalengdir lutu öðrum lögmálum en nú er, varð mönnum tíðrætt um nauðsyn þess, að kaupfélagið kæmi upp útibúum í sveitunum. Sterkust var umræðan um útibú í Varmahlíð. Um 1930 var talað um að byggja þar sláturhús, síðar vélaverkstæði. Af því varð þó ekki. Arið 1950 var jörðin Hof, sem er ríkiseign, tekin á leigu og mannvirki á jörðinni keypt og fyrirhugað að byggja þar a.m.k. verslunarhús. Ekki varð af því að byggja á Hofí, heldur fengin önnur lóð og bygging hafin 1965. Þar var opnuð verslun 1968. Þessi verslun þjónar nágrannabyggðum og þó einkum ferðamannaverslun, sem hefur stóraukist. Því var aukið við húsnæðið 1977. I september 1980 varð eldur laus í verslunarhúsinu og brann allt, sem inni var og húsið stórskemmdist. Brugðið var skjótt við og húsið endurbyggt með nokkurri viðbót. Var verslunin opnuð aftur nokkru fyrir jól.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.