Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 31

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 31
GLOÐAFEYKIR 29 byggingarinnar. Var verkinu lokið sumarið 1950. Allt frá því að mjólkursamlagið var stofnað hefur framleiðslan verið í stöðugri þróun. En um 1970 hófst umræða um nauðsyn þess að endurskipuleggja vinnsluna. Mjólkurinnlegg var þá orðið margfalt á við það, sem var tuttugu árum áður. Keyptur var tíu þúsund lítra tankur þetta ár og markar það upphaf endurskipulagningarinnar. Tveimur árum seinna var ákveðið að setja upp gufuketil auk ýmissa hagræðinga í rekstrinum. Keypt voru ný gerilsneyðingartæki, bæði fyrir mjólk og rjóma. Tíu þúsund lítra sjálfhreinsandi skilvinda, tveir 60 þúsund lítra geymslutankar fyrir mjólk, kælitæki, þvottavél og 12 þúsund lítra ostatankur. Litlu síðar var hafrnn undirbúningur tankvæðingar hjá bændum. Sumarið 1976 voru keyptir tveir tankbílar frá Þýskalandi og byrjað að nota þá til mjólkurflutninga vorið eftir. En það var 29. apríl 1977 sem fyrstu mjólkinni var dælt á tankbíl í Útvík. Ekki leið á löngu þar til öll mjólk var flutt með tankbílum til mjólkursamlagsins. Fiskvinnsla Fljótlega eftir að kaupfélaginu óx fiskur um hrygg fóru sjómenn á Sauðárkróki að hvetja stjórn þess til að bæta erfiða aðstöðu til fiskverkunar. Eftir að frystihúsið var reist 1928 opnuðust möguleikar á að nota það fyrir fisk þann tíma, sem kjöt var ekki í því. Útgerð var að aukast á Sauðárkróki og síldarsöltun að hefjast. Var lagt í ýmsan kostnað til útgerðar næstu ár. Arið 1938 var ákveðið að byggja beitu- og matvælageymslu og sama ár var samþykkt að leggja 50 þúsund króna hlutafé í síldarverksmiðju. Tveimur árum seinna tók hraðfrystihús til starfa. Þá var lagt fram hlutafé í Útgerðarfélag Sauðárkróks, sem þá var nýstofnað. En þessi fjárútlát báru lítinn ávöxt. Síldin hvarf og fískigöngur inn á Skagafjörð stórminnkuðu. Almannarómur sagði um þessar mundir, að Sauðárkrókur yrði aldrei útgerðarbær. Þetta átti þó eftir að breytast. Kaupfélagsstjórnin fjallaði oft um það á fundum sínum, hvernigauka mætti atvinnuöryggi sjómanna og fiskverkafólks. Lagt var fram hlutafé til reksturs togara í samvinnu við bæjarfélög á Norðurlandi.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.