Glóðafeykir - 01.04.1989, Síða 45
GLOÐAFEYKIR
43
föður, blindan að kalla, og farlama systur, sem fékk áfall fyrir
nokkrum árum, af þvílíkri tillitssemi, alúð og umhyggju, að víst má
fágætt telja. Og þó vann hún úti hálfan daginn, meðan sjálfri entist
heilsa. Hún var hetja, þessi smávaxna kona.
Björn Gíslason frá Sauðárkróki, verkamaður í Reykjavík, andaðist
hinn 21. júní 1977.
Hann var fæddur að Stóru-Seylu á Langholti 17. jan. 1914, sonur
Gísla húsmanns þar Konráðssonar bónda í Brekkukoti fremra í
Blönduhlíð, Bjarnasonar, og konu hans
Guðnýjar Stefánsdóttur bónda á Halldórs-
stöðum á Langholti, Bjarnasonar. Voru þeir
hálfbræður samfeðra, Konráð í Brekkukoti,
afi Björns, og Stefán á Halldórsstöðum, en
konur þeirra, Rósa og Aðalbjörg Magnús-
dætur, alsystur, og foreldrar Björns því hvort
tveggja, bræðra- og systrabörn. Þau
Halldórsstaðahjón voru foreldrar Páls, sjá
Glóðaf. 9, bls. 43, og Haralds bónda í
Brautarholti, sjá Glóðaf. 16, bls. 59, og
þeirra systkina. Var Björn Gíslason
þremenningur við Stefán Islandi óperu-
söngvara. Er sönghneigð og hljómlistargáfa
eðlislæg meðal þeirra ættmenna margra.
Fyrstu árin mun Björn hafa verið með
foreldrum sínum, en sambúð þeirra stóð
skamma hríð. slitu samvistum meðan Björn var enn barn að aldri.
,,Var síðan Björn með móður sinni í vinnumennsku á ýmsum bæjum í
Seyluhreppi. Ungur að árum mun hann hafa farið að vinna fyrir sér, en
um tvítugsaldur, þá nýlega fluttur til Sauðárkróks, tók hann
illkynjaðan sjúkdóm, er varð þess valdandi, að hann lá á sjúkrahúsi
árum saman, fékk þó nokkra heilsu aftur, en gekk aldrei heill til
skógar, og bar útlit hans því nokkur merki æ síðan”. (St. M.) Um hríð
stundaði hann bifreiðaakstur, m.a. hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, svo
og ýmsa létta vinnu. „Hann var mjög handlaginn og kom það sér vel
eftir að heilsan bilaði; vann hann þá að ýmsum smáiðnaði heima hjá
sér, svo sem innrömmun mynda o. fl. Síðustu árin dvaldi hann í
Björn
Gíslason