Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1990, Page 24
Stuclia theologica islandica
sem guðs son og þess að menn játi kristna trú - rennir ásamt öðru frekari
stoðum undir þá niðurstöðu að skipting í tvo hópa með hliðsjón af trúar-
afstöðu eigi við rök að styðjast.
Er líf ab loknu þessu ?
Eilífðarmálin, sem svo eru nefnd, hafa löngum verið ofarlega á baugi meðal
landsmanna. Og víst er um það að íslenska þjóðin hefur algjöra sérstöðu meðal
frændþjóðanna á Norðurlöndum hvað varðar trú á líf eftir dauðann. I könnun
Hagvangs 1984, sem var hluti af alþjóðlegri könnun Gallupstofnunar um
lífsviðhorf og gildismat, svöruðu 76% því játandi að þeir tryðu á líf eftir dauð-
ann. Tölur frá hinum Norðurlöndunum voru sem hér segir: Danmörk 26%,
Svíþjóð 28%, Noregur 44% og Finnland 49%.
Skyld þessari spurningu er spurningin um tilveru sálarinnar. Allt að 81%
Islendinga, sem þátt tóku í könnuninni, álitu að til sé sál. Meðaltal á öllum
Norðurlöndunum var 43%.
I könnun Hagvangs gafst mönnum ekki kostur á öðru en svara því játandi
eða neitandi hvort þeir tryðu á líf eftir dauðann, auk svarsins „veit ekki“. Gera
má ráð fyrir að hugmyndir manna um hvers eðlis þetta framlíf sé geti verið
með ólíkum hætti. Til þess að fá frekari vitneskju um þær hugmyndir var því
ákveðið að orða spurninguna um líf eftir dauðann þannig:
„Ymsar skoðanir eru til á því, hvað taki við eftir dauðann. Hver af
eftirfarandi fullyrðingum kemst næst skoðun þinni“?
Merkið við fleiri en eina ef við á.
Tafla 11,10 Líf eftir dauðann (n=731):
1. Það er ekki til neins konar líf eftir dauðann 8.8
2. Eitthvað tekur við eftir dauðann, en enginn
getur vitað hvað það verður 58.8
3. Maðurinn endurholdgast eftir dauðann tíl
nýs lífs á jörðunni 5.6
4. Við dauðann flyst sálin yflr á annað tílverustíg 31.1
5. Maðurinn rís upp tíl samfélags við guð
eftír dauðann 14.2
6. Svara ekki spurningunni 6.0
Þessar niðurstöður vitna í sjálfu sér um mjög almenna trú á líf eftir dauðann.
Aðeins um 9% merkja við fyrsta valkostinn. Þess ber þó að geta að sex af
hundraði svarenda svöruðu ekki spurningunni. Mætti e.t.v. hugsa sér að í hópi
þeirra séu fleiri sem ekki trúa á líf efdr dauðann en það gera. Engu að síður
22