Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1990, Page 66
Studia theologica islandica
ýmsir haldið áfram svipuðum rannsóknum á siðrænum þroska og sett fram
ítarlegri kenningar um skipdngu hans í ákveðin þrep og skeið.18
Goldman fann í stórum dráttum samræmi milli trúarlegrar hugsunar og
þeirra skeiða vitræns og siðræns þroska sem Piaget taldi sig finna. Hann og
aðstoðarfólk hans átd viðtöl við 200 börn og unglinga á aldrinum 6-17 ára þar
sem athugaður var skilningur á hugtökum, líkingum og dæmisögum úr
Biblíunni ásamt skilningi á kirkjunni og bæninni. Forsendur Goldmans fyrir
því að styðjast við kenningar Piagets í þessum athugunum eru þær að trúar-
hugsun barna lúti sömu lögmálum og vitrænt hugarstarf að öðru leyd.19
A skeiði hlutlægrar hugsunar eru guðshugmyndirnar enn í viðjum mann-
legra eiginda. En hér á sjálft líkingamál Biblíunnar hlut að máli. Þar er talað
um guð í mannlegum eigindum. Nægir að benda á bænina „Faðir vor“ sem
Jesús kenndi lærisveinum sínum. Einnig má benda á upphaf hinnar postullegu
trúarjátningar: „Eg trú á Guð föður...“ Við þetta bætist að yngstu börnin eru
enn bundin sjálfhverfri hugsun og takmarkaðri reynslu sem hindrar þau í að
skilja hin dýpri og margræðari svið mannlegra tengsla. Goldman lýsir því
þannig hvernig trúarhugmyndirnar byggja á vitrænum þroska á þessu aldurs-
skeiði, í lauslegri þýðingu:
Þær takmarkanir sem eru bundnar við hlutbundið hugarstarf leiða trúarhugsun
barnsins inn í manngerðan trúarheim - algerlega óháð því hvort kristnifræðikennslan
gengur út frá manngerðri guðshugmynd eða ekki - þar til að því kemur að barnið nær
þroskaðri dómgreind á öðrum sviðum.-0
Einna merkilegustu niðurstöður Goldmans eru þær að í vissum tilvikum líða
nokkur ár frá því barn er búið að öðlast hæfileika til formlegrar rökhugsunar
(við 11-12 ára aldur) þar tíl það getur beitt þessari hugsun í trúarlegum efn-
um. Að jafnaði voru börnin 13-14 ára þegar þau beittu eiginleikum óhlut-
bundinnar rökhusunar á hugtök og líkingar Biblíunnar. I vissum tilvikum kom
óhlutbundinn skilningur þó ekki fram fyrr en við 15-16 ára aldur. Þetta átti
t.d. við um skilning unglinganna á Kristi, eðli hans og hlutverki. Almennar
ástæður fýrir því að manngerðarhugmyndir viðhaldast lengur en ætla mættí af
vitrænum þroska eru, eins og áður er getið, að unglingurinn þarf að hafa
öðlast ákveðna lífsreynslu tíl að skilja inntak trúarlegra líkinga. Þá nefnir Gold-
man einnig að rangar kennsluaðferðir geti fest unglinga í manngerðar-
hugmyndum um guð og eiginleika hans. Einnig nefnir hann greindarskort og
áhugaleysi um trúmál.21
Þekktasta sálfræðikenning um upptök og þýðingu manngerðareiginleika
guðshugtaksins eru kenningar Sigmund Freuds. Samkvæmt þeim byggir
Siá ereinareott yfirlit og mat á bessum rannsóknum í Kurt Bercling: Moral utveckline,
Stockholm 1982, bls. 23 o.áfr.
1<J Ronald Goldman: Religious Thinkingfrom Ckildhood to Adolescence, 1964, bls. 67.
20 Sama rit, bls. 99.
21 Sama rit, bls. 100 o.áfr.
64
i